152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

168. mál
[14:45]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Enn heyrum við það sem einn helsta rökstuðning stjórnarliða, og þeirra sem standa að þessu frumvarpi, að það sé bara afleiðing af öðru frumvarpi, eins og það að ef menn hafi hugsanlega gert mistök í eitt skipti þá þurfi þeir að halda því áfram. (Gripið fram í: Nei …) Þetta eru ekki rök sem halda, fyrir utan að það er ákveðinn eðlismunur á frumvarpi sem varðar vinnumarkaðinn og hugsanlegar hömlur á tjáningu fólks þar, án þess að ég sé að segja að það hafi verið rétt að gera það, eða hömlum á allt samfélagið, hömlum á gagnrýni á skoðanir annarra.

Hin rökin sem mikið eru nefnd, um samræmda skilgreiningu á áreitni, vekja líka ákveðnar áhyggjur. Bara til að vísa í dæmi sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi áðan þá finnst mér það áhyggjuefni ef menn ætla að setja í sama flokk raunverulega áreitni, kynferðislega áreitni eins og hv. þingmaður nefndi — leggja það að jöfnu við gagnrýni á skoðanir. Ég myndi þvert á móti telja að það væri afar mikilvægt að halda þessu aðskildu og að sjálfsögðu, eins og ég hef rakið í fyrri ræðum, ekki takmarka eðlilega gagnrýni á skoðanir fólks eða setja slíka gagnrýni í samhengi við alvarlega hluti.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefnir hér enn og aftur að mismunun eigi sér stað í samfélaginu, sem er án efa rétt. En þá þarf að bregðast við því með aðferðum sem eru til þess fallnar að bæta þar úr, ekki með frumvarpi eins og þessu sem getur valdið tjóni, bæði með því að vega að tjáningarfrelsi og eðlilegri gagnrýni og ég tala nú ekki um, eins og nefnt var í síðustu ræðu, að fara að blanda þarna saman alvarlegri áreitni og gagnrýni á skoðanir.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi líka að það þyrfti að bregðast við því að enn væri til mismunun í samfélaginu með því að senda skýr skilaboð og þetta ættu að vera þau skýru skilaboð sem þingið sendir frá sér í þeim efnum. En þau eru augljóslega ekki skýr. Ef maður les textann í frumvarpinu þá felur hann í sér eitthvað allt annað en talsmenn frumvarpsins hér reyna að telja okkur trú um að það eigi að áorka. Það virðist vera uppfullt af alls konar lýsingum um mikilvægi þess að uppræta mismunun og slíkt, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði hér áðan, og síðan af uppfyllingarefni eins og að taka sérstaklega fram að ekki aðeins sé mismunun ólögleg heldur fjölþætt mismunun líka. Þetta er í fyrsta skipti sem ég minnist þess að hafa séð það í frumvarpi að það væri ólöglegt að brjóta lög einu sinni en það væri líka ólöglegt að brjóta þau oftar.

Eins og frumvarpið lítur út virðist það fyrst og fremst samið til þess að geta sagst vera að gera eitthvað í mikilvægu máli. Innihaldið er ekki til þess fallið að leysa þann vanda en felur hins vegar í sér mjög verulegar hættur sem vega að tjáningarfrelsi og gagnrýninni umræðu í lýðræðissamfélagi.