málefni innflytjenda.
Herra forseti. Hér er þetta mál komið eina ferðina enn og nú í 3. umr., mál sem á það sameiginlegt með málinu sem við ræddum hér áðan að snúast um oft og tíðum, eins og rætt hefur verið um þetta mál, ákveðið dyggðamont, án þess að líta til raunverulegs innihalds og áhrifa frumvarpsins. En þetta frumvarp gengur gegn þróun og markmiðum ríkisstjórna flestra landa í kringum okkur. Hvaða markmið eru það? Jú, það eru markmiðin um að ná stjórn á hælisumsóknum og hverjir koma til landsins til þess að geta betur nýtt þau takmörkuðu fjárráð og úrræði sem hvert ríki hefur til að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálp að halda.
Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, forsætisráðherra sósíaldemókrata — dönsku Samfylkingarinnar, má kannski segja, en þó er nú greinilega orðinn mikill munur á þessum flokkum — lýsti því yfir að markmiðið með stefnu flokksins og nú ríkisstjórnarinnar þar í landi væri að enginn kæmi til Danmerkur til að leita hælis. Með því var forsætisráðherrann ekki að tala um að Danir ættu ekki að taka við flóttamönnum. Nei, þeir vildu sjálfir hafa stjórn á því hverjum væri boðið til landsins og beina fólki inn í hinn lögformlega, örugga farveg sem var þar lýst og koma í veg fyrir að meiri hluti þeirra sem kæmu til landsins og sæktu þar um hæli kæmi á vegum glæpagengja sem svífast einskis við það að selja fólki væntingar um betra líf annars staðar og leggja það í lífshættu eftir að hafa jafnvel tekið af því aleiguna, eða stundum meira en það, með kröfu um að viðkomandi verði í þrælavinnu til þess að borga skuld eftir að hafa fengið vist í einhverju landi, og forsætisráðherra Dana sagði: Danmörk má ekki verða söluvara fyrir þessa aðila.
Önnur Norðurlönd hafa lagt upp með sambærilega stefnu, reyndar ólíka framkvæmd. Nú bætist það við að akkúrat þessa dagana eru bresk stjórnvöld að reyna að ná tökum á málaflokknum þar og hafa þar á meðal nýtt sér hugmynd sem var fyrst kynnt, að því er ég tel, af fyrrnefndum dönskum sósíaldemókrötum, um að senda þá sem kæmu til landsins annað til að vinna úr málum þar. Í báðum tilvikum, bæði í tilviki Danmerkur og Bretlands, var m.a. talað um Rúanda. Það er ekki gert vegna þess að ríkisstjórnir þessara landa búist við að það leiði til enn meiri fjölda og það þurfi að senda enn fleiri til baka til Rúanda. Nei, það er gert til þess að klekkja á glæpagengjum og gera þeim ókleift að selja ferðir til þessara landa og leggja fólk í lífshættu og fyrir vikið hvetja fólk, og þá sérstaklega það fólk sem á raunverulegan rétt á hæli, til að fara öruggari leiðir, því að raunin hefur orðið sú, eins og þetta kerfi hefur þróast hér á landi og víðar, að sífellt fleiri nýta kerfið til að sækja um hæli en eru í raun að leita að betri kjörum. Mjög stór hluti þeirra sem kom til að mynda til Norðurlandanna og Íslands og Bretlands er að koma í þeim tilgangi. Maður skilur að ef það opnast glufa eða tækifæri til að komast í betri kjör, og jafnvel umtalsvert betri kjör en menn búa við, þá vilji menn nýta það — hver myndi ekki gera það? — jafnvel nýta að því marki að menn séu tilbúnir að steypa sér í skuldir og leggja sig í lífshættu til að komast í slík kerfi. Þess vegna mega kerfin ekki vera til þess fallin að ýta undir slíkt en þannig hafa þau þróast.
Nú eru bresk stjórnvöld lent í vandræðum með það að framfylgja stefnu sinni um að senda fólk sem hefur komið ólöglega til landsins til Rúanda, ekki vegna þess að það skorti pólitískan stuðning, ekki vegna þess að dómstólar þar í landi, þar með talið hæstiréttur landsins, hafi lagst gegn því, þvert á móti, dómstólarnir höfðu staðfest að þessi lög giltu, heldur vegna þess að einhver ónefndur aðili í Strassborg, dómari sem er ekki einu sinni sagt hvað heitir, tók ákvörðun um það utan vinnutíma að stöðva framkvæmdir án þess að hafa þá kveðið upp úr í málinu. Þannig eru stjórnvöld hér á landi og víðar jafnt og þétt að gera sér erfiðara fyrir að framfylgja stefnu sinni og lýðræðislegum vilja kjósenda.
Það er stöðugt, eins og mér hefur orðið tíðrætt um, verið að færa vald til stofnana sem nýta þetta síaukna vald oft á tíðum til annarra hluta en kjósendur ætlast til. Það er eðlilegt að kjósendur hafi áhyggjur af þróun þessara mála og ekki hvað síst þeir kjósendur sem vilja flóttamannakerfi, hæliskerfi, sem er til þess fallið að hjálpa fólkinu sem er í mestri neyð. Og nú sjáum við þetta raungerast eftir að stríðið í Úkraínu hófst, eins og meira að segja hæstv. dómsmálaráðherra sagði, að þær ógöngur sem kerfið er lent í hér hafa gert það að verkum að það er erfiðara en ella að taka á móti öllu því fólki sem við vildum gjarnan taka á móti, sem er raunverulega að flýja sprengjur og stríð í Úkraínu, vegna þess að kerfið er að miklu leyti teppt af þeim sem hafa komið hingað til að bæta kjör sín, til að búa við betri aðstæður.
Fjölgunin hefur verið mjög mikil á Íslandi hvað þetta varðar, alveg ótrúlega hröð, að því marki að nú sækja líklega hlutfallslega sjö eða átta sinnum fleiri um hæli hér á Íslandi en í Noregi og Danmörku. Það er afleiðing þeirra skilaboða sem stjórnvöld í hinum löndunum hafa sent frá sér sem hafa dregið úr álaginu þar, gert þeim betur kleift að takast á við vandann og hjálpa þeim sem eru í mestri neyð. Það er líka afleiðing þeirra skilaboða sem hafa komið héðan þar sem mál virðast oft á tíðum vera afgreidd með hliðsjón af því hvort einstaklingar komist í fréttir eða ekki og utanaðkomandi þrýstingi. Ef fram heldur sem horfir mun þessi munur bara aukast — sérstaklega á meðan Norðurlöndin leggja aukna áherslu á að ná aftur stjórn á landamærum sínum og samfélögum, en það er nú hluti af stefnu hjá dönsku jafnaðarmönnunum — og þá mun það enn auka togkraft Íslands í þessu samhengi. Bretland og öll nágrannalönd okkar eru að fara í þveröfuga átt miðað við það sem ríkisstjórnin boðar enn og aftur í þessu frumvarpi sem felur það í sér að allir eigi sama rétt, og sá réttur er víðtækur, og þeir sem boðið er hingað sérstaklega, valdir vegna þess að það er fólk í mikilli neyð, valdir og boðið að koma til Íslands og eiga rétt á talsverðum stuðningi, meiri kannski en í flestum öðrum löndum, en eru orðnir lítill hluti af þeim sem koma hingað í leit að hæli vegna þessarar fjölgunar sem ég nefndi áðan.
Með þessari breytingu stendur til að lögfesta það að allir sem hingað koma og fá annaðhvort hæli eða dvalarleyfi eigi sama rétt og fólkið sem fór í flóttamannabúðir, sótti þar um að fá að komast til Íslands, fór í gegnum heilmikið ferli og beið og fékk jákvætt svar og var boðið hingað. Þeir sem kaupa frekar þjónustu smyglaragengjanna og leggja sig í lífsháska, steypa sér í skuldir við þessi gengi, eigi sama rétt á stuðningi íslenskra stjórnvalda og þeir sem sérstaklega er boðið hingað. Þetta gengur þvert gegn því sem dönsku kratarnir og dönsk stjórnvöld almennt og víðar á Norðurlöndum eru að vinna að, að draga úr hvötunum fyrir glæpamennina. Þetta býr til hvata. Það verður hægt að selja þetta. Á Íslandi er lagaleg trygging og það eru þessar og þessar glufur í kerfinu ef reynt verður að koma í veg fyrir að þú fáir þessa tryggingu.
Þetta er hættulegt frumvarp og mun hafa miklu víðtækari áhrif en ríkisstjórnin virðist gera sér grein fyrir, enda er þetta enn eitt þessara frumvarpa sem ég nefndi í umræðu um annað mál sem snýst bara um yfirskriftina og áformin, um það hvernig hlutirnir ættu að þróast og hvað menn séu að gera góða hluti, eins og þeir lýsa því sjálfir í frumvarpinu, án tillits til hins raunverulega innihalds og hinna raunverulegu afleiðinga. Sérstaklega í ljósi þróunarinnar á öðrum Norðurlöndum er þetta mjög verulegt áhyggjuefni. Á sama tíma hefur hins vegar ráðherrum og þingmönnum Sjálfstæðisflokksins ekki enn tekist að koma í gegn skyldufrumvarpi um útlendingamál sem var kynnt hér fyrir nokkrum árum sem nauðsynleg viðbrögð til að reyna að laga móttökukerfið. Því er frestað aftur og aftur. Sjálfstæðismennirnir láta sig hafa það að lúta í gras fyrir samstarfsflokkunum með það mál en máli sem vinnur í þveröfuga átt er troðið í gegn á lokametrunum í þinginu.
Þegar hælisleitendum og flóttafólki og förufólki fjölgaði mjög árið 2015, ekki hvað síst eftir stefnubreytingu í Þýskalandi en auðvitað fyrst og fremst vegna stríðsins í Sýrlandi, þá ferðaðist ég um nærsvæði stríðsátakanna og heimsótti flóttamannabúðir. Það var yfirleitt gegnumgangandi hjá þeim sem maður hitti þar að fólkið vildi helst geta fengið að snúa aftur heim til sín. En það var alveg sérstaklega áhugavert að ræða við það fólk sem starfaði við móttöku flóttamannanna eða til að mynda þá sem störfuðu við að sigla um Miðjarðarhafið og höfðu bjargað mörgum flóttamönnum úr háska þar og ekki náð að bjarga öllum. Skilaboðin frá þessu fólki, þegar það gat tjáð sig maður á mann, án þess að segja eitthvað sem það átti á hættu á að yrði snúið út úr og ráðist á það fyrir, voru alltaf: Þið megið ekki stöðugt vera að innleiða kerfi sem gagnast glæpahópunum og setur fólk í hættu. Það var t.d. sérstaklega nefnt: Eitt það hættulegasta sem þið gerið er að gera sérstakar undanþágur varðandi börn því að það mun enn ýta undir þá þróun að börn séu send af stað, í sumum tilvikum ein, í sumum tilvikum með mjög hættulegu fólki, og skili sér jafnvel ekki á áfangastað. Þetta var fólk sem var að vinna við þetta, að reyna að hjálpa fólki.
Skilaboðin frá því voru aftur og aftur afdráttarlaust: Hættið að setja lög sem ýta undir þessa óheillaþróun, reynið frekar að hjálpa meira hér á nærsvæðunum. En hvernig hafa Vesturlönd staðið sig í því að hjálpa á nærsvæðunum, til að mynda í Líbanon þar sem sama fjármagn gæti hjálpað tífalt fleirum? Þar hefur verið sparað og Líbanon, hrjáð og fátækt land, þurft að taka við milljónum flóttamanna án þess að fá til þess nægan stuðning. En það er bara einfaldlega þægilegra, flottara finnst þeim kannski, fyrir stjórnmálamenn á Vesturlöndum að koma með frumvörp eins og þessi sem menn hafa ekki hugmynd um hvað muni kosta, ekki hugmynd, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir þar um, en þá geta þeir sýnt að þeir séu góðir án þess að þurfa að líta til áhrifanna, án þess að líta á raunveruleg áhrif frumvarpsins. Raunveruleg áhrif þessa frumvarps geta verið mjög skaðleg og til þess fallin að ýta undir hættuför hundruða, jafnvel þúsunda, manna.