málefni innflytjenda.
Virðulegur forseti. Ég vil við 3. umr. þessa máls, um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, byrja á að koma inn á það sem gert var undir lok 2. umr. hér fyrir stuttu þar sem gert var samkomulag um það að lagðar yrðu fram tilteknar spurningar til að reyna að leiða fram upplýsingar í tengslum við það mál sem hér er til umræðu. Þær voru lagðar fram í gegnum velferðarnefnd sem fjallaði um málið og ég get sagt eins og er að ég var ekki alveg nógu sáttur með hvernig á því var á endanum haldið, en það er efni fyrir síðari umræðu. Það sem ég gerði miklar athugasemdir við hér við 1. og 2. umr. var það að ekki væri horft til afleiddra áhrifa vegna frumvarpsins, þessa svokallaða „pull factor“ á ensku sem ég tel líklegt að muni aukast að þessu frumvarpi samþykktu þar sem horft er til þess að það verði samræmd móttaka fyrir einstaklinga sem fá vernd, burt séð frá því hvernig þeir koma til landsins, þ.e. hvort sem þeir koma á eigin vegum eða á grundvelli flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.
Það er eitthvað sem veldur því að umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi eru jafn margar og raunin er og í raun miklu fleiri en það sem við sjáum í löndunum í kringum okkur. Ef við horfum bara á tölur frá 2021 þá voru umsóknir um alþjóðlega vernd á hverja 10.000 íbúa 23 á Íslandi, 11 í Svíþjóð, fimm í Finnlandi, fjórar í Danmörku og þrjár í Noregi. Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi voru sem sagt jafn margar á hverja 10.000 íbúa og samanlagt umsóknir á 10.000 íbúa að jafnaði á öllum hinum Norðurlöndunum samanlagt. Ég tel að það sé alveg nauðsynlegt að við áttum okkur á hvað veldur. Ég hef stundum sagt í gríni að varla sé það veðrið en það er eitthvað sem orsakar það að sóknin er svona mikil hingað og ég held að við þurfum að komast á þann stað að þessi umræða verði meira byggð á staðreyndum. Auðvitað verða alltaf tilfinningar í þessari umræðu, undir eru einstaklingar sem eru að leita sér að betra lífi, en það breytir því ekki að við verðum að leggjast í þá vegferð að draga fram betri og fyllri upplýsingar sem auðvelda okkur sem um þetta fjöllum að glöggva okkur á raunverulegri stöðu, átta okkur til að mynda á því hvað orsakar það að það eru jafn margar umsóknir hlutfallslega til Íslands og allra hinna Norðurlandaþjóðanna samanlagt. Ef við horfum t.d. á tölurnar eins og þær lágu um miðjan maí, ég bara hef ekki yngri tölur hjá mér, þá eru komnar rúmlega 1.500 umsóknir, þar af tæplega 1.000 frá Úkraínu vegna þess sérstaka ástands sem þar er núna á meðan stríðsátök ríkja. En það eru rúmlega 500 á öðrum svæðum og það bendir til þess að við séum að horfa á hartnær 1.500 umsóknir án umsókna frá Úkraínu þetta árið.
Ég held það blasi við flestum sem þekkja álag á hin ýmsu stoðkerfi og velferðarkerfi hér innan lands að kerfið ræður illa við slíkan fjölda. Við verðum að horfa á hlutina eins og þeir eru og ég held að við verðum að ganga í það verk að greina hvað íslenskt samfélag, íslensk stoðkerfi, ræður við hvað varðar heilbrigðisþjónustu, húsnæðismál, sálfræðiþjónustu, túlkaþjónustu og eitt og annað. Það hefur verið reynt að nálgast þetta á grundvelli samninga og þess samstarfs sem á sér stað við móttöku kvótaflóttamanna í gegnum sveitarfélög landsins en að öðru leyti held ég að það sé allt of lítil greining sem er þarna undirliggjandi. Ég held að við verðum að ganga í það verkefni til þess að geta tekið ákvarðanir á betur grunduðum forsendum en nú er. Ég held að það væri allra hluta vegna skynsamlegt að leggja vinnu í að tosa saman þessar upplýsingar sem til eru víða í kerfinu en mjög fáir hafa heildarsýn yfir til þess að umræðan verði ballanseraðri, afsakið slettuna, virðulegur forseti, þannig að umræðan verði meira í jafnvægi og að við komumst eitthvað áfram í stað þess að fara að kalla hvert annað nöfnum þegar mönnum mislíkar málflutningur mótaðilans.
En aftur að þessari fyrirspurn sem fór til félags- og vinnumarkaðsráðherra í gegnum velferðarnefnd vegna málsins og til ráðuneytis hans. Þar var spurt nokkurra spurninga og mér þótti nú heimtur hvað svör varðar ekki vera ásættanlegar. En látum það liggja á milli hluta í bili. Það var þó eitt og annað áhugavert sem þar kom fram. Manni sýnist á öllu að raunverulega sé að miklu leyti verið að skjóta lagastoð undir framkvæmd sem hefur verið viðvarandi um nokkra hríð með því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Það skýrir kannski ýmsar athugasemdir ráðherra á fyrri stigum þegar málið hefur verið lagt fram þar sem því var efnislega haldið fram að það væri engin raunveruleg breyting að verða. Það má til sanns vegar færa með ákveðna þætti. Til dæmis kemur fram í svarinu að á grundvelli úrskurðarnefndar velferðarmála, nr. 43/2017, hafi frá þeim tíma þeir einstaklingar sem öðlast vernd komist hraðar inn á örorku en Íslendingar sem eru að koma heim erlendis frá. Þetta er atriði sem, samkvæmt því sem ég hef hlerað síðan þetta svar kom fram, virðist ekki vera almannavitneskja um. Auðvitað þekkja þeir þetta sem eru að vinna í þessum kerfum en það eru m.a. svona þættir sem ég held að við ættum að leggja vinnu í að draga fram til að umræðan verði byggð á staðreyndum frekar en á tilfinningum.
Annað sem kom fram í þessu svari er hlutur sem snýr að kostnaði. Ég gagnrýndi mikið hér í 1. og 2. umr. að kostnaðarmat frumvarpsins eins og það liggur fyrir hafi verið upp á 40,8 milljónir. Það blasir við öllum að það kostnaðarmat er tóm vitleysa og það er gagnrýnisvert í sjálfu sér að menn láti það standa. En það er hægt að leiða út beinan kostnað sem af frumvarpinu hlýst og síðan væri auðvitað hægt að gera tilraun til að leggja mat á afleidda kostnaðinn. En horfum bara á beinan kostnað. Í þessu svari, sem er upp á sex blaðsíður og er aðgengilegt á vef Alþingis undir málinu, eru eftir töluverðar málalengingar hóparnir tveir eingöngu bornir saman vegna þess launakostnaðar sem sveitarfélög verða fyrir vegna þjónustu við fólk með vernd sem fellur ekki undir kvótaflóttamannakerfið. Kostnaðurinn við þennan mjög svo afmarkaða lið kom á daginn að er árlega 265% af heildarmati kostnaðarmatsins eins og það liggur fyrir í frumvarpinu. Bara þessi mjög svo afmarkaði liður er 265% af kostnaðarmati frumvarpsins eins og það liggur fyrir og þá er allt hitt eftir. Kostnaðarmat frumvarpsins er því algjör þvæla og það er ámælisvert að menn láti við svo búið sitja í frumvarpi sem þessu og reyni ekki einhvern veginn að ná utan um þetta. Það eru ýmsir aðrir þættir sem þarna eru undir sem kæmu til skoðunar og þá eigum við alveg eftir að skoða aðdráttaraflið, „pull factor“-inn. Það var ágætt hugtak sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson notað hér í ræðunni á undan, (SDG: Togafl.) togaflið akkúrat, það kemst sennilega næst því að lýsa þeim „pull factor“ sem talað er um í þessu samhengi, áhrifin sem orsaka aukinn fjölda umsókna.
Þessu til viðbótar langar mig áfram til að koma inn á svarið sem hér liggur fyrir, og var kallað eftir í nefnd milli 2. og 3. umr., þar sem segir í 1. mgr., með leyfi forseta:
„Viðmiðunarreglur flóttamannanefndar verða lagðar niður og þess í stað stuðst við leiðbeinandi reglur um móttökuþjónustu sveitarfélaga og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks sem gefnar voru út árið 2014 af þáverandi velferðarráðuneyti, nú félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.“
Þetta er sem sagt hluti af því að svara á hvaða grundvelli réttindi til þjónustunnar eru til komin.
Það er skemmst frá því að segja að þegar lagðar eru til hliðar viðmiðunarreglur flóttamannanefndar um móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks — sem voru gefnar út í maí 2013 og taka m.a. á því í 15. gr. með hvaða hætti fjárhagsaðstoð, félagsleg ráðgjöf, húsnæði ásamt nauðsynlegu innbúi og síma, menntun, einkum íslenskukennsla, móðurmálskennsla og samfélagsfræðsla, leikskólakennsla, tómstundastarf, heilbrigðisþjónusta og tannlækningar, þjónusta túlka, aðstoð við atvinnuleit og önnur nauðsynleg þjónusta er römmuð inn — þá segir hér, eins og áður kom fram, að vikið verði frá þessum reglum og í staðinn innleiddar reglur sem voru gefnar út í maí árið 2014 af þáverandi velferðarráðherra sem nú er félags- og vinnumarkaðsráðherra. Síðan segir á bls. 4 í því plaggi, með leyfi forseta: Ekki er unnt að byggja rétt til þjónustu á reglunum.
Félagsmálaráðuneytið og félagsmálaráðherra, sem leggja fram það frumvarp sem hér er til umræðu, segja í svari milli 2. og 3. umr. að hverfa eigi frá þeim reglum sem viðhafðar hafa verið og miða við aðrar þar sem segir beinlínis á bls. 4 að ekki sé unnt að byggja rétt til þjónustu á reglunum. Það er dálítið eins og þeir sem halda á þessu máli séu á flótta undan sjálfum sér. Mér þykir miður að málið sé núna augljóslega að klárast á þeim forsendum að svona augljósar neyðarreddingar, flótti frá efnisatriðum málsins sé í gangi. Það stenst auðvitað enga skoðun að verið sé að hverfa frá reglum sem hafa verið viðhafðar og í notkun í tæpan áratug og taka upp ári yngri reglur sem í stendur beinlínis að ekki sé hægt að byggja rétt á; ekki er unnt að byggja rétt til þjónustu á reglunum. Það að við séum að klára þetta mál með þeim afleiddu áhrifum sem ég held að flestum þyki blasa við og eru augljós — sérstaklega í ljósi þess þegar við horfum til þess, eins og ég sagði áðan, að hlutfallslega eru umsóknir jafn margar á Íslandi og hjá öllum hinum Norðurlandaþjóðunum samanlagt, 23 á Íslandi á hverja 10.000 íbúa, 11 í Svíþjóð, fimm í Finnlandi, fjórar í Danmörku og þrjár í Noregi. Það eru þrjár í Noregi og 23 á Íslandi á hverja 10.000 íbúa. Það er eitthvað þarna undirliggjandi sem við verðum að ná utan um til þess að við getum varið þeim peningum sem til þessa málaflokks fara til þeirra sem mest þurfa á þjónustunni að halda og eru í mestri neyð, því að þessi gagnrýni sem ég set hér fram snýst ekkert um það að vilja ekki taka á móti fólki í neyð, bara alls ekki, heldur verðum við að tala um hlutina eins og þeir eru, leggja mat á kostnað eins og hann liggur fyrir og blasir við. Við þurfum að greina hvað við getum gert svo að við gerum það sem við gerum almennilega en reynum ekki að gera allt fyrir alla því að það er vísasta leiðin til þess að gera hluti illa fyrir alla sem að þessu koma og þurfa á þjónustu að halda og það mun kosta ríkissjóð gríðarlega fjármuni.
Ég held að við verðum sömuleiðis að skoða hvort það sé ekki í mörgum tilvikum betri nýtingu að fá út úr fjármunum sem til þessa málaflokks fara með því að veita þjónustuna á nærsvæðum fólks erlendis svo að fólk þurfi ekki að leggja á sig hættulegt ferðalag, oft undir hatti glæpamanna sem hafa gert sér neyð fólks að féþúfu. Við þurfum að koma þessu kerfi, sem ég leyfi mér að fullyrða að er eins og sakir standa hrunið, til betri vegar þannig að, eins og ég ítreka, við gerum vel við þá sem við tökum á móti, styðjum við aðlögun þeirra við íslenskt samfélag en reynum ekki að gera allt fyrir alla.