152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

málefni innflytjenda.

271. mál
[15:21]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Hv. þm. Bergþór Ólason kom aðeins inn á mál sem ég impraði á í fyrri ræðu en myndi vilja ræða aðeins nánar. Það er það hvernig frumvörp eru oft kynnt sem smámál, tæknilegar breytingar jafnvel og slíkt, frumvörp sem koma iðulega úr kerfinu, en um leið og búið er að samþykkja þau er farið að vinna eftir þeim og nýta þau til frekari valdaukningar fyrir kerfið og þá er útskýrt fyrir stjórnmálamönnum, eins og í Bretlandi nú, að þeir geti ekkert gert — sama hvað kjósendum finnist þá sé bara búið að gefa þetta vald eftir. Með þessu frumvarpi er verið að gera íslenskum stjórnvöldum samtímans og framtíðarríkisstjórnum, stjórnmálamönnum almennt, þingmönnum, erfiðara fyrir að takast á við það sem er líklega eitt stærsta úrlausnarefni samtímans, sem er flóttamannavandinn. Það er vandi sem öllum má vera ljóst að mun bara aukast eftir því sem fram líða stundir því eins og ég hef rakið í fyrri ræðu þá dugar það ekki einu sinni að kjör batni í þróunarlöndum. Það dregur ekki úr straumi hælisleitenda, það eykur hann. Það eykur hann umtalsvert og þess vegna koma mjög fáir, nánast engir frá allra fátækustu löndunum. Eftir því sem fólk hefur meiri efnahagslega burði til þá fjölgar umsóknum um að komast þá í enn betri kjör. Það er mjög stór þáttur í þessari þróun sem sér ekki fyrir endann á. Þess vegna verðum við, stjórnvöld hér á landi og víðar, að vera í stakk búin til að setja þær reglur sem best eru til þess fallnar að taka á vandanum og hjálpa þeim sem eru mest hjálparþurfi.

En eins og með svo mörg mál, sérstaklega á þessu sviði, þá virðist þetta mál ekki snúast fyrst og fremst um að finna bestu leiðirnar til að gera sem mest gagn fyrir þá sem eru í mestri neyð. Það virðist fyrst og fremst snúast um fólkið sem leggur þetta fram og talar fyrir því, því að ella myndu menn fara aðrar leiðir, ella myndu menn vilja ná stjórn á ástandinu, samanber Norðurlöndin, samanber Bretland, til að geta betur nýtt tækifærin til að hjálpa þar sem neyðin er mest. Þetta færir okkur enn frekar frá því að geta gert það.

Þróunin er hröð eins og hefur verið rakið hér með samanburði á fjölda hælisumsókna á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Þetta var allt öðruvísi. Ísland er fjarlægasti áfangastaðurinn. Til að komast hingað hafa menn jafnan þurft að fara í gegnum önnur lönd og Dyflinnarreglugerðin hefur gert ráð fyrir því að menn ættu að sækja um hæli í fyrsta landinu sem þeir koma til. Fyrir vikið var fjöldi umsókna á Íslandi langminnstur af Norðurlöndunum lengi vel, hlutfallslega langminnstur. Núna er hann langmestur eins og nefnt hefur verið í tölum og hlutfallið skekkist enn. Við sjáum líka í þessum nágrannalöndum að þangað leitar fólk jafnvel eftir að hafa fengið hæli í öðrum löndum. Hundruð manna koma á einhverjum kænum, einhverjum fleytum, frá Frakklandi til Bretlands dag eftir dag, jafnvel þrátt fyrir að hafa átt rétt á hæli í Frakklandi, eigi menn þann rétt yfir höfuð. Það er vegna þess að verið er að leita að þeim áfangastað sem er álitlegastur. Hér er verið að merkja Ísland sem einn álitlegasta staðinn fyrir þá sem skipuleggja þessa flutninga og það er hættulegt. Það er mjög hættulegt og verður erfitt að vinda ofan af því. Nú heyrum við meira að segja hv. þingmenn tala um að fólk megi ekki fara til ákveðinna Evrópusambandslanda, jafnvel þingmenn sem berjast ákaft fyrir því að Ísland fari í Evrópusambandið svoleiðis að það verði líft hér. En það má ekki senda fólk til Evrópusambandslanda sem þó hefur fengið þar hæli. Togkraftur Íslands heldur áfram að aukast með þessu frumvarpi og það gerir okkur erfiðara fyrir að gera raunverulegt gagn.

Herra forseti. Ég sé að tíminn er runninn frá mér en það eru nokkur atriði sem ég á eftir að fara yfir og ég bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá nema umræðunni sé lokið og þá ekkert við því að gera.

(Forseti (BLG): Ræðumaður er allavega búinn með sinn ræðutíma.)