152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti velferðarnefndar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. Málið kom til nefndarinnar í seinni hluta marsmánaðar og var því í nokkurn tíma til umfjöllun þar.

Með tillögunni er lagt til að mótuð verði stefna um heilbrigðisþjónustu við aldrað fólk sem verði grundvöllur aðgerðaáætlunar til ársins 2030. Tillagan er byggð á stefnudrögum sem heilbrigðisráðherra lét vinna vorið 2021 og framsetning tekur mið af áherslum í samþykktri heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Í þeirri heilbrigðisstefnu er lögð áhersla á sjö meginviðfangsefni sem endurspeglast í fyrirliggjandi tillögu en þá með áherslu á eldra fólk og heilbrigðisþjónustu við það.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi á þskj. 1246.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta að almenn ánægja er með tillöguna meðal umsagnaraðila en lögð er rík áherslu á gott og virkt samráð við notendur þjónustunnar, hagsmunaaðila og sérfræðinga við framkvæmd stefnunnar, gerð aðgerðaáætlunar í kjölfarið og framkvæmd aðgerða. Tekur nefndin undir mikilvægi virks og breiðs samráðs og samvinnu um verkefnið allt.

Nefndin fjallaði sérstaklega um samþættingu þjónustu. Fyrir nefndinni komu fram þau sjónarmið að nauðsynlegt væri að móta sameiginlega stefnu í heilbrigðis- og félagsþjónustu við aldraða og undir forystu þeirra ráðuneyta sem færu með málaflokkana. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að horft sé á þjónustu við eldra fólk á breiðum grunni og þar á meðal til félagslegrar þjónustu. Slík áhersla er einnig í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Nefndin áréttar einnig að verkefnisstjórnin sem kveðið er á um í tillögunni og mælt er fyrir um í stjórnarsáttmálanum á einmitt að líta heildstætt á þjónustu við eldra fólk og að þar verði þessi samþætting því tekin til frekari umfjöllunar og skoðunar. Í rauninni vísar nefndin ítrekað til þess að umrædd verkefnisstjórn taki við þeim ábendingum sem bárust frá umsagnaraðilum við umfjöllun um þetta mál og komi þeim í réttan farveg.

Þetta á einnig við um réttindi fatlaðs fólks sem nefndin fjallaði um. Nefndinni var bent á mikilvægi þess að við stefnumótun sem lýtur að heilbrigðisþjónustu við aldrað fólk yrði sérstaklega litið til þeirra skyldna sem hvíla á íslenska ríkinu samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Nefndin tekur undir mikilvægi þess og beinir því til framangreindrar verkefnisstjórnar að líta sérstaklega til málefna eldra fatlaðs fólks og þjónustu við það.

Nefndin fjallaði að auki um greiðslu húsnæðiskostnaðar til hjúkrunarheimila þar sem bent var á að enn ríki ákveðin óvissa með greiðslur til þeirra. Bent var á þá sameiginlegu niðurstöðu vinnuhóps heilbrigðisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu að skoða þurfi húsnæðiskostnað hjúkrunarheimila sérstaklega. Nefndin bendir á að nú þegar hafa verið stigin skref í þá átt, að fylgja þessari niðurstöðu eftir, með yfirlýsingu sem heilbrigðisráðherra gaf út 1. mars í tengslum við nýjan samning um aukið fjármagn til hjúkrunarheimila og úrbætur til framtíðar. Þar kom fram að heilbrigðisráðherra myndi beita sér fyrir stofnun starfshóps um húsnæðismál hjúkrunarheimila sem fjármálaráðuneytið færi fyrir.

Þá var fjallað um einstaklingsbundna þjónustuáætlun. Í tillögunni er lögð veruleg áhersla á einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu og að innleiða einstaklingsbundna þjónustuáætlun sem byggi á heildrænu öldrunarmati. Samband íslenskra sveitarfélaga lagði til að í stað þess að tala um einstaklingsbundna þjónustuáætlun yrði notað hugtakið persónumiðuð og samþætt þjónusta. Í 6. lið tillögunnar er m.a. vísað til þess að eitt af stefnumiðum til ársins 2030 sé stuðningsáætlun sem væri þá í samræmi við hugtakanotkun í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og raunar er hugtakið stuðningsáætlun víða notað. Nefndin telur að breytt orðanotkun gæti orðið til þess að skýra og samræma en tekur þó ekki afstöðu til þess á þann hátt að leggja til breytingar því að mikilvægt er að slík breyting sé gerð að undangenginni umræðu og í sátt við alla hagaðila. Þess vegna beinir nefndin því til umræddrar verkefnisstjórnar að taka þetta til skoðunar. Þar eru einmitt fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem gætu tekið málið upp á þeim vettvangi.

Að lokum ræddi nefndin um mikilvægi nýsköpunar og rannsókna í framþróun heilbrigðisþjónustu við aldrað fólk og tekur undir áherslu tillögunnar á stóraukna notkun velferðartækni. Fyrir nefndinni var bent á tækifæri til að bæta þjónustu og mikilvægi þess að tengja markvissar rannsóknir við tilrauna- og þróunarverkefni sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila sem eru stöðugt að leita leiða til að mæta áskorunum, hvort sem er á víðfeðmum dreifbýlum svæðum eða í þéttbýli þar sem tækifæri til samþættingar geta verið mjög ólík. Í umsögn Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar er t.d. sagt frá þróunarverkefni þar sem fyrirhugað er að búa til ramma um þjónustuna þar sem litið verður til skipulags á samþættri félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er eldra fólki, innleiðingu velferðartækni og fjarlausna og uppbyggingu akstursþjónustu vegna hæfingar, dagdvalar og félagsstarfs. Með vísan til efnis tillögunnar og þess sem þegar hefur komið fram um mikilvægi þess að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu telur nefndin mikilvægt að verkefnisstjórnin líti til slíkra verkefna, stuðli að faglegu mati og úttekt á reynslu af þeim og hafi til hliðsjónar þá þekkingu sem þegar er til hjá ólíkum sveitarfélögum og mismunandi stofnunum og fyrirtækjum.

Nefndin leggur til eina efnislega breytingu á þingsályktunartillögunni. Eitt af þeim verkefnum sem lagt er til að ráðist verði í til að skýra hlutverk og vinna að bættri þjónustu og samhæfingu í heilbrigðiskerfinu er að skipaður verði starfshópur vegna Áratugar heilbrigðrar öldrunar, þvert á ráðuneyti. Samband íslenskra sveitarfélaga lagði til að það fengi beinan fulltrúa inn í þá vinnu sem þarna á að eiga sér stað varðandi samþættingu og fleira. Nefndin tekur undir sjónarmið sambandsins og telur þátttöku fulltrúa sambandsins í verkefnisstjórn sérstaklega mikilvæga við leit að leiðum til frekari samþættingar þjónustu. Nefndin leggur til breytingu þessu til samræmis en áréttar líka að Samband íslenskra sveitarfélaga mun eiga tvo fulltrúa í þeirri verkefnisstjórn sem ítrekað er rætt um í nefndarálitinu og kveðið er á um í tillögunni.

Þá leggur nefndin til smávægilegar orðlagsbreytingar sem hafa ekki efnisleg áhrif og þarfnast ekki skýringa.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Halldóra Mogensen, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Orri Páll Jóhannsson og Óli Björn Kárason.