152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.

575. mál
[15:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir áliti um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.

Með tillögunni er lagt til að samþykkt verði stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem leggur áherslu á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu á félagslegum grunni og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum. Það eru sameiginlegir hagsmunir á heimsvísu að auka áherslu á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðisþjónustu sem er í samræmi við stjórnarsáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi áunnist á síðustu árum er ljóst að enn skortir heildstæða og samhæfða nálgun í geðheilbrigðismálum, allt frá geðrækt, forvörnum og snemmbærum úrræðum til geðheilbrigðisþjónustu á öllum stigum og á milli velferðarþjónustukerfa og við dómskerfi. Framsetning tillögunnar tekur þannig mið af því og er sett fram með hliðsjón af fjórum kjarnaþáttum og áherslum sem munu endurspeglast í þeim aðgerðum sem heilbrigðisráðuneytið mun móta.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti velferðarnefndar benda á að flestir umsagnaraðilar eru jákvæðir gagnvart tillögunni og leggja til að hún verði samþykkt. Meiri hlutinn vill þó sérstaklega árétta eftirfarandi:

Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og bendir á að til staðar verði að vera úrræði til að veita þjónustu þeim börnum sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Aukin þekking og reynsla hafa leitt af sér aukinn skilning á mikilvægi þessa tímabils í lífi einstaklinga Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að litið verði til fyrstu þúsund daga barnsins hvað varðar geðheilsu og vellíðan, samanber skýrslu landlæknis um framtíðarsýn og tillögur að aðgerðum frá því í júní árið 2021. Þar koma fram aðgerðir sem brýnt er að ráðast í á næstu árum. Meiri hlutinn telur mikilvægt að skoða sóknarfæri til að efla geðheilsu í æsku og líta þar til verndandi þátta sem vega hvað þyngst hvað geðheilsu varðar er tengjast æskuárunum. Þar er vert að skoða hvort skólinn sé ákjósanlegasti vettvangurinn til að ná til barna og unglinga með geðrækt og forvörnum.

Þá fjallaði nefndin um gagnreyndar og fyrirbyggjandi aðgerðir. Margir umsagnaraðilar bentu á mikilvægi slíkra aðgerða í bland við ábyrga lyfjameðferð. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi gagnreyndra og fjölbreyttra aðferða við meðferð geðraskana í ljósi bestu þekkingar sem fyrir hendi er hverju sinni og að lögð verði áhersla á þverfaglega mönnun og fjölgun fagstétta. Meiri hlutinn ítrekar það sem segir í greinargerð að heildræn geðheilbrigðisþjónusta verði samþætt og byggð á bestu mögulegu gagnreyndri meðferð og endurhæfingu.

Umsagnaraðilar lýsa yfir áhyggjum af mikilli notkun geðlyfja hérlendis og ofuráherslu heilbrigðiskerfisins á sjúkdómsvæðingu geðsjúkdóma og þar með notkun lyfja. Meiri hlutinn tekur undir áhyggjur umsagnaraðila og leggur áherslu á að stuðlað verði að ábyrgri lyfjanotkun samhliða gagnreyndum og fyrirbyggjandi meðferðum.

Nefndin fjallaði að auki um notendasamráð og mælaborð geðheilsu. Í tillögunni er gert ráð fyrir stofnun geðráðs þar sem stjórnvöld, fagfólk, notendur og aðstandendur koma saman og fjalla um málaflokkinn. Í umsögn Geðhjálpar kemur fram að samtökin hafi lengi talað fyrir stofnun slíks ráðs en lögð er áhersla á að samhliða stofnun þess verði tekið upp svokallað mælaborð geðheilsu.

Meiri hlutinn tekur undir ábendingar Geðhjálpar og leggur áherslu á mikilvægi söfnunar tölfræðiupplýsinga og mikilvægi þess að árangursmæla gæði og þjónustuna sem er veitt. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu sem kom út í apríl 2022 er ein af sjö ábendingum að efla þurfi söfnun upplýsinga, greiningu og utanumhald. Til þess þarf að skoða hvaða kerfi er unnið með við skráningu upplýsinganna og árangur þeirra meðferða sem veittar eru og skoða það heildstætt með þeim hagaðilum sem munu vinna með kerfin. Meiri hlutinn bendir á að í geðráði komi saman allir helstu hagsmunaaðilar og ef öll gögn og tölfræði verða þar fyrir hendi ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að hægt sé að útbúa mælaborð geðheilsu. Fyrir er til staðar mælaborð lýðheilsu sem birtir tölulegar upplýsingar er varða lýðheilsu í landinu með gagnvirkum og myndrænum hætti. Slíkur gagnagrunnur er varðar geðheilsu væri til þess fallinn að auðvelda vinnslu og aðgengi að upplýsingum um geðheilbrigðismál og átta sig betur á hver staðan er hverju sinni.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til eina breytingu á tillögunni sem snýr að upplýsingaskráningu. Til að tryggja góða yfirsýn og markvissa stefnumótun í geðheilbrigðismálum þarf að efla söfnun upplýsinga, meðferð gagna og bæta aðgengi að þeim. Að mati meiri hlutans er hægt að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar með þeim áhersluþáttum sem settir eru fram í geðheilbrigðisstefnunni en meiri hlutinn vill þó leggja áherslu á að fara þarf í vinnu við að efla söfnun upplýsinga, greiningu og utanumhald og leggur til breytingu þar að lútandi.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Orri Páll Jóhannsson og Óli Björn Kárason.

Virðulegi forseti. Hér er um mjög mikilvægt framfaraskref að ræða. Þegar við samþykkjum þessa stefnu í geðheilbrigðismálum erum við að senda ákveðin skilaboð, þau skilaboð að við ætlum að fjárfesta í geðheilsu fólks, fjárfesta í fólki og það skiptir máli að við tökum utan um þennan málaflokk af festu og með framtíðarsýn að leiðarljósi.