stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit frá 1. minni hluta um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Fyrsti minni hluti fagnar því að komin sé þingsályktunartillaga um stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030 enda brýnt og aðkallandi að stjórnvöld leggi fram stefnu, aðgerðaáætlun og yfirsýn yfir þennan mikilvæga málaflokk. Við styðjum tillöguna en hefðum viljað sjá metnaðarfyllri stefnu sem gengi enn lengra. Við hefðum viljað sjá stefnuna vísa í skýrar aðgerðir sem ráðast þarf í. Þá er algjört grundvallaratriði að tryggt verði, í þeirri vinnu sem nú stendur yfir í heilbrigðisráðuneytinu, að áætluninni sé tryggt nægjanlegt fjármagn.
Nýútkomin skýrsla Ríkisendurskoðunar, sem varðar geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, varpar ljósi á alvarleg vandamál tengd geðheilbrigðismálum líkt og skert aðgengi að þjónustu, skort á ábyrgð á veittri þjónustu og vanfjármögnun, ásamt gráum svæðum sem einstaklingar með geðrænan vanda eiga til að lenda á. Af lestri skýrslunnar er ljóst að illa gengur að leysa fyrirliggjandi vandamál sem bitnar auðvitað verst á notendum þjónustunnar. Einnig kom fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að markmiðum aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum frá 2016–2020 var ekki náð og flest vandamál sem voru við lýði þegar hún var sett eru enn til staðar. Þegar nánar er rýnt í aðgerðaáætlunina má sjá að einu aðgerðirnar sem komust til framkvæmda voru þær sem voru fjármagnaðar frá byrjun. Því er ljóst að ófjármagnað þjóðarátak dugir ekki til, það þarf langtímasýn, fjármagnaðar og vel tímasettar aðgerðir og pólitískan vilja og úthald.
Geðheilbrigðisþjónustan er líflína og grundvöllur heilbrigðis, en eins og kemur fram í skilgreiningu heilbrigðis hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er heilbrigði skilgreint sem líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma eða örorku. Geðheilbrigði er nefnilega grundvöllur heilbrigðis en það vekur áhyggjur hversu stórt mein geðsjúkdómar eru orðnir í okkar samfélagi, hversu hamlandi þessir sjúkdómar eru og kostnaðarsamir. Við verðum að nýta geðheilbrigðisstefnuna til að taka faglega á málefninu og ber þar hæst að tryggja fjármögnun, efla aðgengi að þjónustunni, mennta fleira fagfólk í greininni og grípa til snemmtækra forvarna. Einnig væri einkar gagnlegt að horfa til lýðheilsuvísa landlæknis til að meta atriði líkt og andlega heilsu hjá fullorðnum, notkun þunglyndislyfja og heilsugæsluheimsóknir vegna geð- og atferlisraskana. Á nýútgefnum lýðheilsuvísum fyrir Suðurnesin fyrir árið 2022 má sjá að heilsugæsluheimsóknir vegna geð- og atferlisraskana voru 22,7 heimsóknir af hverjum 100, miðað við 18,9 heimsóknir á landinu öllu. Andleg heilsa fullorðinna sem metin var sæmileg eða léleg mældist 32,1% á Suðurnesjum miðað við 29,7% á landinu öllu. Í ljósi þessa má leiða að því líkur að efla þyrfti enn betur aðgengi og fjármagn til geðheilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Brýnt er að grípa fyrr þá einstaklinga sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda til að koma í veg fyrir stærri og flóknari vandamál síðar á lífsleiðinni, en flestar rannsóknir sýna að forvarnir eru gríðarlega mikilvægar þegar viðkemur andlegri heilsu. Fyrsti minni hluti telur framfaraskref að stefnt sé að því að geðrækt, forvarnir og snemmbær úrræði verði grundvöllur geðheilbrigðis einstaklinga og þarf því að setja geðrækt inn á öll skólastig frá unga aldri. Fyrsti minni hluti bendir á, líkt og gert er í áðurnefndri skýrslu ríkisendurskoðanda, að bæta þarf aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og útrýma gráum svæðum sem myndast hafa í kerfinu undanfarin ár. Varðandi skoðun á umræddum gráum svæðum í geðheilbrigðiskerfinu, þar sem skjólstæðingar fá ekki þjónustu við sitt hæfi, kemur í ljós að ábyrgðin er óljós innan heilbrigðisþjónustunnar milli ríkis og sveitarfélaga auk þess sem ágreiningur ríkir um ábyrgð á kostnaði. Þessi vandi kemur skýrt fram þegar þörf er á sértækri þjónustu sem enginn telur sig eiga að veita. Því er afar brýnt að skilgreina betur ábyrgðar- og hlutverkaskiptingu þjónustuaðila en einnig auka samvinnu, þverfagleg vinnubrögð og samfellu í þjónustunni.
Eins og staðan er í dag sitjum við ekki öll við sama borð þegar kemur að aðgengi að geðheilbrigðiskerfinu og ákveðin kerfislæg mismunun virðist vera innbyggð í kerfinu. Það ræðst gjarnan af efnahag, tegund geðvanda og búsetu hvort einstaklingar fái þjónustu eða ekki. Þá á flóttafólk og annað fólk af erlendum uppruna sem ekki talar íslensku eða stendur félagslega verr að vígi enn erfiðara með aðgang að þjónustunni.
Biðlistar eftir lífsnauðsynlegri þjónustu eru allt of langir um allt land. Ríkisendurskoðandi telur að helsta skýringin sé skortur á sérhæfðu starfsfólki og viðeigandi úrræðum og að hvati sé til staðar í kerfinu til að vísa erfiðum málum frá til að komast hjá kostnaði. Með leyfi forseta ætla ég að endurtaka þetta: Það er hvati í kerfinu okkar til að vísa erfiðum málum frá og komast þannig hjá kostnaði. Þetta er staðreyndin eins og hún liggur fyrir í dag, sem er mjög miður. Afar brýnt er að ráðast strax í aðgerðir til að sporna við þessari þróun og koma í veg fyrir langa biðlista. Löng bið eftir geðheilbrigðisþjónustu getur aukið vanda skjólstæðinga og aðstandenda þeirra og getur gert verkefni þjónustunnar mun flóknari, erfiðari og dýrari en ella hefði orðið. Í þessu samhengi er við hæfi að ítreka að þörf er á fyrirhyggju og langtímahugsun í þessum mikilvæga og vandasama málaflokki.
Í stefnunni er að finna góð markmið sem 1. minni hluti styður en stefnan þarf að miða að nútímalegri útfærslu með sjónarmið notenda þjónustunnar að leiðarljósi. Samanburðarríki okkar eru komin mun lengra en við í þróun þjónustu við fólk með geðrænar áskoranir og þangað eigum við að stefna. Þannig náum við árangri og fækkum á endanum þeim einstaklingum sem þurfa á flóknari inngripum að halda.
Virðulegi forseti. Fyrsti minni hluti beinir því til ríkisstjórnarinnar að tryggt verði að væntanleg aðgerðaáætlun verði fjármögnuð, verði ítarlegri en fyrri áætlun og taki m.a. á þeim atriðum sem fyrsti minni hluti hefur bent á sem og ríkisendurskoðandi í skýrslu sinni um geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi.