152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.

575. mál
[15:52]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Í mars 2022 kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, nánar tiltekið varðandi stefnu, skipulag, kostnað og árangur. Í stuttu máli má segja að íslenska geðheilbrigðiskerfið hafi fengið falleinkunn. Fjölmargar brotalamir á núverandi geðheilbrigðiskerfi komu fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Þar segir:

„Geta stjórnvalda til að tryggja þá þjónustu sem þörf er á er undir væntingum og bið eftir þjónustu almennt of löng og ekki í samræmi við markmið stjórnvalda. Íslensk stjórnvöld skortir yfirsýn um stöðu geðheilbrigðismála en upplýsingar um tíðni og þróun geðsjúkdóma liggja ekki fyrir og ekki hefur farið fram greining á þjónustu- og mannaflaþörf Landspítala. Ekki er haldin miðlæg skrá um biðlista og upplýsingar um fjárþörf og raunkostnað geðheilbrigðisþjónustunnar liggja ekki á reiðum höndum. Tölur um óvænt eða alvarleg atvik við veitingu geðheilbrigðisþjónustu eru ekki með góðu móti aðgengilegar og á það einnig við um fjölda kvartana til embættis landlæknis. Þá er skráning á beitingu þvingunarúrræða ekki til staðar.“

Áréttuð er í skýrslu Ríkisendurskoðunar nauðsyn þess að bætt verði úr þessu.

Sérstök stefna um geðheilbrigðismál var ekki sett hér á landi fyrr en með aðgerðaáætlun fyrir árin 2016–2020 sem hefur nú runnið sitt skeið án þess að ný hafi tekið gildi. Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ný stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 taki gildi. Skýrsla Ríkisendurskoðunar er gott verkfæri til að rýna stefnuna og leggja mat á hvort hún sé til þess fallin að leysa úr vandamálum geðheilbrigðiskerfisins og stuðla þannig að bættri geðheilsu þjóðarinnar.

Það sem skýrsla Ríkisendurskoðunar sýnir svo glöggt er að það er þörf á því að endurskoða málaflokkinn í heild. Íslenska geðheilbrigðiskerfið byggist að miklu leyti á úreltri nálgun á geðheilbrigði og geðheilsu og því miður þá ber stefnan ekki með sér að verið sé að endurskoða stoðir kerfisins heldur er miklu frekar verið að plástra núverandi kerfi. Það er rík þörf fyrir að grípa til nýrrar nálgunar í málaflokknum og telur 2. minni hluti miður að þetta tækifæri verði ekki nýtt til þess.

Einn stærsti galli núverandi kerfis er skortur á heildrænni nálgun þar sem einstaklingum er mætt á þeirra forsendum, með þeirra hagsmuni að leiðarljósi. Kerfið er ekki hugsað út frá upplifun notenda heldur út frá skipulagningu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu. Afleiðingin er sú að geðheilbrigðisþjónusta er brotakennd, samskipti á milli mismunandi eininga eru takmörkuð og handahófskennd og kerfið er hugsað á grundvelli þess að sjúkdómsgreina og flokka notendur eftir því hvernig kerfið skilgreinir þá en ekki út frá þörfum hvers og eins. Kerfið, forseti, gengur út á að greina sjúkdóma í manneskju þegar við ættum mögulega frekar að vera að greina sjúkdóminn í samfélaginu.

Staðreyndin er sú að flest fólk þarf á einhverjum tímapunkti aðstoð fagfólks í geðheilbrigðisþjónustu. Fólk lendir í alls konar áföllum í lífinu og margt býr við erfiðar félagslegar aðstæður, bæði á uppvaxtarárum og seinna á lífsleiðinni. Vandi margra gæti skilist sem mjög eðlileg viðbrögð líkamans við mjög óeðlilegum aðstæðum. Þetta finnst mér vera grundvallaratriði þegar kemur að nálgun á veikindum fólks, nálgun sem skortir í þeirri framtíðarsýn sem þessi stefna á að birta okkur. Með því að bjóða einstaklingsmiðaða þjónustu og það snemma, áður en vandinn verður þyngri og flóknari, má koma í veg fyrir mörg af þeim vandamálum sem núverandi kerfi reynir að leysa. En þá verður líka að horfa til þess að eftir því sem vandi viðkomandi eykst þá verður kerfið óskilvirkara. Einstaklingur sem þarf margþætta þjónustu er líklegri til að fá brotakennda þjónustu og að falla á milli kerfa og lenda á þeim mörgu gráu svæðum sem fjallað er um í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Eitt af stærstu púslunum sem vantar í allri umræðu um stefnu í geðheilbrigðismálum er hvaða áhrif félagslega kerfið hefur á geðheilsu. Aðalfókusinn ætti að vera á þetta. Mörg og jafnvel flest þeirra vandamála sem geðheilbrigðiskerfinu er ætlað að leysa eiga rætur sínar að rekja í félagslega kerfinu þar sem áhrifarík, snemmtæk íhlutun getur komið í veg fyrir mörg vandamál síðar meir. Það að setja stefnu sem tekur ekki mið af aðgerðum í félagslega kerfinu getur aldrei orðið heildstæð stefna sem er nauðsynleg forsenda þess að ná fram árangursríkum breytingum í geðheilbrigðiskerfinu.

Forseti. Í stuttu máli þurfum við að breyta því hvernig við hugsum um geðheilsu. Við þurfum að breyta því hvernig við vinnum þegar við mætum þessum áskorunum og við verðum að flétta þessi kerfi saman þannig að þau spili saman og við getum horft á allan málaflokkinn á heildstæðari hátt. Þessi stefna, því miður, gengur bara ekki nægilega langt þegar kemur að því að skoða þetta á heildstæðan hátt. Ég get alveg tekið undir það að stefnan er að mörgu leyti góð, en það vantar bara þessa hugmyndafræðilegu grundvallarbreytingu á því hvernig við hugsum um þennan málaflokk. Ég vona svo innilega að við förum bráðum að nálgast þann stað að við sjáum mikilvægi þess að fara út úr þessari sjúkdómsvæðingu og lyfjanotkun sem lögð er aukin áhersla á í núverandi kerfi og inn í það að skoða rót vandans, hvað það er sem veldur þessum vandamálum hjá fólki. Er þennan sjúkdóm mögulega að finna í samfélaginu okkar, í samfélagsuppbyggingu, kerfunum okkar, í þeim aðstæðum sem við búum til fyrir marga í samfélaginu, því miður, sem búa við mjög slæmar aðstæður? Það eru börn sem alast upp í mikilli fátækt og miklum erfiðleikum og við hlúum ekki nægilega vel að þeim, sinnum því ekki nægilega vel að uppræta fátækt og þennan félagslega vanda sem svo margir eru að díla við.