152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.

575. mál
[15:59]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Við erum að ræða þingsályktunartillögu um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Ekki þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að mótuð sé stefna í þessum málum og ekki þarf að fara mörgum orðum um það hversu mikilvægt er, þegar verið er að móta stefnu í svona málum, að henni sé framfylgt og að stjórnvöld á hverjum tíma sem taka það í fangið að fara eftir einhverri stefnumótun veiti nægjanlegt fjármagn í málaflokkinn eða komi a.m.k. málum þannig fyrir að börn eða fullorðnir eða einhverjir sjúklingar eða hópar falli ekki á milli skips og bryggju. Við erum öll, held ég, ágætlega meðvituð um það að umfang geðvanda á Íslandi er alltaf að aukast. Við sjáum þetta í alls konar tölum. Það á sér kannski að einhverju leyti skýringar í betri greiningum og aukinni meðvitund um vandann. En við sjáum þetta líka bara í aukinni ásókn í ýmiss konar geðlyf og í aukinni ásókn í þjónustuna. Við sáum það, þegar rætt var um hvort samþykkja ætti að sálfræðiþjónusta yrði niðurgreidd, hvernig umræðan fór á flug um mikilvægi þess að hlúa vel að geðrækt. Og úr því að ég er nú að nefna það mál þá vil ég enn og aftur lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að þrátt fyrir að þingið hafi samþykkt þetta fyrir fáeinum misserum þá skuli því ekki enn hafa verið hrundið í framkvæmd af nægilegum krafti. Það eitt og sér er meiri háttar geðheilbrigðismál og heldur betur stefnumótun til framtíðar, ef við getum orðað það þannig, stefnumótun í verki getum við kallað það.

Við hljótum öll að vera meðvituð um það hversu viðkvæmir sjúklingar þetta eru. Þetta er margslunginn vandi og snertir mörg svið en þeir sem eru veikastir og í veikustu stöðu eru alveg gríðarlega viðkvæmir hópar. Það skiptir öllu máli að halda sérstaklega vel utan um mál og byggja kerfið okkar þannig upp að fólk falli ekki einhvern veginn á milli skips og bryggju.

Það er mjög jákvætt að við séum að ræða um stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030. En það er samt eiginlega ekki hægt að fara öðruvísi í gegnum þessa umræðu en að ræða það í samhengi við þá skýrslu Ríkisendurskoðunar sem fyrr hefur verið nefnd í þessari umræðu og við ræddum hér í þinginu fyrir fáeinum dögum og erum reyndar ekki búin að klára að ræða. Ríkisendurskoðandi fór yfir stöðuna í geðheilbrigðismálum og gaf út heldur betur svarta skýrslu sem ég treysti því og trúi að allir þingmenn hafi a.m.k. kynnt sér að meginefni til. Hún er alveg svakaleg lesning. Hún færir okkur í raun og veru heim sanninn um að það þarf að eiga sér stað talsvert mikil uppstokkun í þessum málaflokki vegna þess að það er svo margt kerfislægt þarna sem hindrar það að veikt fólk nái bata. Við sjáum það á mjög mörgum þáttum sem Ríkisendurskoðun snertir á í sinni skýrslu. Við komumst ekkert hjá því að ræða þetta samhliða vegna þess að eitt af því sem var verið að tala um í þessari skýrslu var einmitt nákvæmlega það að gengið hefði illa og skort mikið upp á eftirfylgni í gegnum tíðina, einmitt þegar menn eru að móta sér stefnu og reyna að búa til einhver plön til lengri tíma. Þar eru margir þættir undir hjá ríkisendurskoðanda.

Það er ekkert minnst á þessa skýrslu í sjálfu sér í gögnum málsins eftir því sem ég sá, enda kemur þetta svo sem inn í þingið á mjög svipuðum tíma, en mér finnst full ástæða til þess að halda til haga ákveðnum þáttum úr þessari skýrslu þegar við erum að ræða þetta mál. Það má til að mynda benda á að á einum stað í skýrslunni er sagt, með leyfi forseta:

„Stefna í geðheilbrigðismálum hefur einkum verið sett fram í almennri stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu og með sérstakri stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum tímabilið 2016–20. Var það í fyrsta sinn sem sérstök stefna var sett um geðheilbrigðismál á Íslandi. Áherslur voru einkum á eflingu grunnþjónustu í nærumhverfi, forvarnir og snemmtæka íhlutun.

Heilbrigðisráðuneyti hefur ekki lagt formlegt mat á árangur aðgerðaáætlunarinnar og var eftirfylgni með framgangi hennar ekki markviss að mati Ríkisendurskoðunar. Þá skorti upp á samráð við skráða ábyrgðaraðila. Á heildina litið var árangur aðgerðaáætlunarinnar ófullnægjandi og eru flest vandamál sem voru til staðar þegar stefnan var sett enn við lýði.“

Þetta þýðir í raun og veru að þrátt fyrir fögur fyrirheit í mótaðri stefnu þá erum við nokkrum árum síðar á nákvæmlega sama stað. Mönnum gekk ekki að vinna eftir þessu fína plaggi. Það er reyndar tiltekið hér, svo ég haldi nú áfram lestrinum, með leyfi forseta:

„Helst hefur náðst árangur í að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í nærumhverfi fólks á heilsugæslum. Takmarkaður árangur náðist í sex af 18 aðgerðum en tólf aðgerðum er lokið að fullu eða eru vel á veg komnar.“

Þetta er eitthvað sem við þurfum að hafa með þegar við erum að framfylgja einhverri stefnu sem við mótum hér á Alþingi og á að gilda til ársins 2030.

Eins og ég sagði áðan þá var þetta svört skýrsla, algjör falleinkunn. Og einmitt af því að við erum að tala um að móta stefnu til ársins 2030 þá skulum við hafa þetta í huga, með leyfi forseta:

„Íslensk stjórnvöld skortir yfirsýn um stöðu geðheilbrigðismála en upplýsingar um tíðni og þróun geðsjúkdóma liggja ekki fyrir og ekki hefur farið fram greining á þjónustu- og mannaflaþörf Landspítala. Ekki er haldin miðlæg skrá um biðlista og upplýsingar um fjárþörf og raunkostnað geðheilbrigðisþjónustunnar liggja ekki á reiðum höndum.“

Hugsið ykkur t.d. það að upplýsingar um fjárþörf og raunkostnað geðheilbrigðisþjónustunnar liggja ekki á reiðum höndum.

„Tölur um óvænt eða alvarleg atvik við veitingu geðheilbrigðisþjónustu eru ekki með góðu móti aðgengilegar og á það einnig við um fjölda kvartana til embættis landlæknis. Þá er skráning á beitingu þvingunarúrræða ekki til staðar. Ríkisendurskoðun telur brýnt að bætt verði úr þessu.“

Við getum tiltekið fleira, t.d. gráu svæðin sem nefnd voru í skýrslunni. Það er eitthvað sem er snert á að einhverju leyti. Þar er tiltekið að ekki liggi alveg fyrir hver beri ábyrgð á að veita tiltekna þjónustu og vegna þessa þá hafi veikt fólk lent í meiri háttar vandræðum við að fá úrlausn sinna mála eða hreinlega ekki fengið þjónustu. Það er auðvitað kerfi sem ég held að enginn hafi sest niður og ætlar sér að byggja upp. Ég vil taka það skýrt fram að við eigum sem betur fer öll sammerkt hérna í þessum sal að við erum hundrað prósent sammála um markmiðin. Við erum öll mjög velviljuð til þess að gera vel í þessum málaflokki og við finnum öll til með fólki sem glímir við geðrænan vanda og við finnum mjög mikið til með börnum sem þurfa á aðstoð að halda vegna geðræns vanda, það vantar ekkert upp á það. Það var ekkert gert í fyrndinni til þess að reyna að hanna kerfi sem virkar með þeim hætti sem það virkar í dag. Það er hins vegar samt staðan. Þess vegna verð ég að segja að mér finnst það svolítið írónískt þegar ég les greinargerðina með málinu sem við ræðum hér, og þetta segi ég með hliðsjón af því að ég er búinn að vera að rekja eitt og annað af því sem ríkisendurskoðandi segir að sé athugavert í geðheilbrigðismálum okkar. Það er sagt í greinargerðinni með málinu sem nú liggur fyrir:

„Þrátt fyrir töluverðar framfarir í geðheilbrigðismálum á undanförnum árum eru vísbendingar um að Íslendingar standi frammi fyrir frekari áskorunum og hindrunum sem ryðja þurfi úr vegi til að ná árangursríkum framförum til framtíðar.“

Ég verð eiginlega bara að vekja athygli á þessu aftur. Við erum með þessa kolsvörtu skýrslu þar sem kerfið okkar fær því miður falleinkunn. Þrátt fyrir góðan vilja allra stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna, frábærs starfsfólks og allt það, þá hefur samt eitthvað farið úrskeiðis hjá okkur. Það hefur gerst á vakt þeirra flokka sem nú eru við völd. Það hefur gerst á margra áratuga vakt Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins og þá er þetta orðað með þessum hætti í greinargerðinni, að þrátt fyrir töluverðar framfarir í geðheilbrigðismálum á undanförnum árum séu vísbendingar um að Íslendingar standi frammi fyrir frekari áskorunum og hindrunum sem ryðja þurfi úr vegi. Ég held að þetta hljóti að vera einhvers konar heimsmet í því að gera lítið úr þeim vanda vegna þess að menn eru þá á sama tíma meðvitaðir um að þeir bera að einhverju leyti ábyrgð á honum. Þetta er miklu meira en áskoranir og hindranir sem bíða okkar. Það bíður okkar að stokka þetta kerfi upp af talsverðum krafti og gera miklar og markvissar breytingar til að bæta úr. Ég ætla bara rétt að vona að þegar við erum að ræða núna um stefnuna til ársins 2030 séum við öll á þeirri blaðsíðu að við þurfum að taka skýrslu Ríkisendurskoðunar inn í þá vinnu, fletta henni í gegn, lið fyrir lið, blaðsíðu fyrir blaðsíðu, og flétta inn í þá stefnumótun sem verður að eiga sér stað á hverjum tíma í heilbrigðismálum almennt og ekki síst geðheilbrigðismálum.

Ég myndi líka vilja nefna hér fleiri þætti og af því að ég var að tala um gráu svæðin þá langar mig að vitna aftur beint í skýrsluna, með leyfi forseta:

„Þrátt fyrir að verkaskipting heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis (nú félags- og vinnumarkaðsráðuneyti) virðist í grunninn skýr þegar kemur að þjónustu við fólk með geðrænan vanda hafa myndast grá svæði þar sem óljóst er hver beri ábyrgð á að veita tiltekna þjónustu og bera kostnað af veitingu hennar. Á þetta ekki síst við um aðstæður þar sem um langvinnan vanda er að ræða og þegar einstaklingar þurfa á úrræðum heilbrigðis- og félagslega kerfisins að halda samtímis og þörf er á samhæfðari þjónustu …“

Þetta þýðir í raun og veru á mannamáli að þeir sem helst eru fórnarlömb hinna gráu svæða í kerfinu okkar eru kannski þeir sem einna mest þurfa á því að halda að öryggisnetið og þetta sameiginlega net okkar sé þéttriðið og grípi fólk með markvissum hætti. Síðan segir áfram : „Þetta er einn helsti veikleiki í stjórnsýslu málaflokksins. Vandinn er flestum kunnur en illa gengur að leysa hann.“ Þetta vil ég ávarpa sérstaklega með hliðsjón af því sem tiltekið er í þessari tillögu til þingsályktunar sem nú liggur fyrir. Það er ekki nóg að skrifa stefnuna. Við þurfum að taka undir það sem Ríkisendurskoðun er að segja um að það þurfi að innleiða hugmyndirnar og innleiða stefnuna af krafti og það þurfi að gera það markvisst, skref fyrir skref og gefa í raun og veru engan afslátt af því. Eins og ég sagði áðan þá er það eitt af áhyggjuefnum Ríkisendurskoðunar að ekki hafi verið farið eftir þeim áætlunum, stefnum og fyrirheitum sem gefin hafa verið af hálfu þeirra sem móta stefnu í málaflokknum. Það er auðvitað stórt og sjálfstætt áhyggjuefni.

Við verðum að nefna fleiri þætti sem við þurfum að hafa í huga þegar við erum að fara yfir þessi mál. Það er kostnaðurinn, það sem snýr að beinum kostnaði vegna geðheilbrigðisþjónustu. Ríkisendurskoðun lagði áherslu á að finna út úr þessu og kom með tölur, og vísar þar í heilbrigðisráðuneytið, en heilbrigðisráðuneytið áætlar að beinn kostnaður vegna geðheilbrigðismála verði 13,8 milljarðar kr. árið 2021 en beinn kostnaður árið 2020 var um 12,9 milljarðar á verðlagi þess árs. Svo er nefnt að kostnaðarhlutdeild Sjúkratrygginga Íslands vegna geðlyfja hafi verið 2,3 milljarðar árið 2020. Greiðslur úr Tryggingastofnun ríkisins vegna örorku- og endurhæfingarlífeyris þeirra sem voru óvinnufærir vegna geðraskana voru 26,6 milljarðar kr. árið 2020. Á bak við þessa fjárhæð eru 8.300 einstaklingar sem teljast óvinnufærir að hluta eða öllu leyti vegna geðraskana, þetta eru 38% þeirra tæplega 22.000 manna sem fengu slíkar greiðslur það ár. Rúmlega 4.800 lífeyrisþegar til viðbótar eru einnig með geðraskanir þótt þær séu ekki meginástæðan fyrir óvinnufærni.

Ég veit að samkvæmt þessari stefnu sem nú liggur fyrir er stefnt að því að taka á þessum málum með markvissum aðgerðum. En ég hef pínulitlar áhyggjur af því einmitt vegna þess hvernig til að mynda greinargerðin er orðuð og mér finnst í raun og veru ekki teiknuð upp sú raunsanna mynd sem ríkisendurskoðandi tiltekur í sinni skýrslu, þ.e. að það gæti verið að menn væru að vanmeta vandann og það er ekki gott veganesti inn í vinnuna fram undan.

Síðan langar mig líka að nefna, sem ég hélt reyndar til haga þegar við vorum að ræða hér um skýrsluna sjálfa og ég vil draga upp þá mynd hérna núna, að ástæðan fyrir því að ég er líka að tiltaka þetta er að af öllu því sem við erum að fjalla um í vetur held ég að þetta hljóti að vera eitt mikilvægasta verkefnið sem bíður okkar að leysa á næstu árum, það er fullkomlega þannig. Ef kerfið sem heldur utan um geðheilbrigði þjóðarinnar er ekki betra en raun ber vitni þá er það eitthvað sem kveikir öll viðvörunarljós og við verðum að taka á.

Á einum stað í skýrslunni segir:

„Ákveðin mismunun er innbyggð í geðheilbrigðiskerfið á Íslandi og ljóst að ekki sitja allir við sama borð. Aðgengi að þjónustu ræðst gjarnan af efnahag, tegund geðvanda og búsetu.“

Við höfum margoft í þessum sal og alls staðar í samfélaginu rætt um það að búseta er stundum andlag þess að menn sitja ekki við sama borð þegar kemur að þjónustu. Það er hægt að fara í ýmsar aðgerðir til að bæta úr því en sjálfsagt verður það alltaf að einhverju leyti þannig að þjónustan er mest þar sem fólkið er flest. Kannski getum við sagt, og ég vona að þetta komi ekki vitlaust upp úr mér, að það geti verið þannig að það sé erfitt að koma algjörlega í veg fyrir mismunun út af búsetu fólks. En þegar aðgengi að þjónustu ræðst af efnahag, eins og segir í þessari skýrslu, þá hljótum við að staldra við og klóra okkur svolítið í kollinum og velta vöngum yfir því hvað við getum gert betur. Ég veit auðvitað að það er undir í þeirri vinnu sem verið er að leggja hér fyrir okkur og fá okkur til að samþykkja svo að við höfum einhverja stefnu til að vinna eftir til ársins 2030. En ég hef, og minn flokkur, alltaf talað fyrir jafnrétti og þá jafnrétti í víðum skilningi þess orðs, þ.e. við höfum öll jafnan rétt til alls og auðvitað er aðgengi að svona mikilvægum þætti eins og heilbrigðisþjónustan er þar undir. Síðan verðum við líka að nefna þetta orðalag, að ákveðin mismunun sé innbyggð í geðheilbrigðiskerfið. Þá er líka tegund geðvandans þar undir ásamt búsetu og efnahag. Þá erum við bara með kerfi sem er í raun og veru að tryggja mismunun. Það er ekki að tryggja jafnræði, það er að tryggja mismunun. Við getum ekki látið það líðast til lengri tíma hér á Íslandi.

Ég sé það í tillögunni og þessari stefnumörkun að þar er verið að reyna að taka á þeim mikla vanda sem er sá að okkur gengur illa að manna stöður innan geðheilbrigðiskerfisins. Það vantar lækna, það vantar geðhjúkrunarfræðinga og þá vantar í tugatali hér og þar í kerfinu. Þá erum við komin að þeim mönnunarvanda sem oft er verið að tala um. Við verðum að átta okkur á því að hann er líka á ábyrgð stjórnvalda á hverjum tíma. Það er vandinn sem blasir við okkur í dag. Hann er afleiðing einhverrar stefnu sem hefur verið rekin í mörg ár og þar af leiðandi er þessi mönnunarvandi, sem stjórnarflokkarnir tala stundum um sem eitthvert náttúruafl sem hafi komið af himnum ofan, ekkert annað en afleiðing af þeirri stefnu sem þeir flokkar sem nú fara með völd, og ætla sér að innleiða hérna fína stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, bera ábyrgð á, frá A til Ö. Ég ætla rétt að vona að mönnum takist að leysa þennan vanda og ég trúi því af því að ég veit að það er góður hugur hjá öllum til að gera það. Það er auðvitað þannig að við getum ekkert gert með fínar stefnur, við getum ekki byggt upp góð kerfi, manneskjuleg kerfi sem grípa veikt fólk, ef við höfum ekki vel menntað og öflugt starfsfólk til þess að grípa þetta fólk. Kerfið er ekkert án öflugs starfsfólks. Þetta er einn af alvarlegustu veikleikunum í kerfinu okkar í dag.

Að því sögðu vil ég bara hvetja fólk til góðra verka í þessu efni. Við erum hér að móta þessa stefnu. Við erum algerlega sammála um markmiðin. Við erum fullkomlega sammála um að við viljum hafa þéttriðið net sem grípur fólk sem er með geðrænan vanda. Okkur getur greint á um leiðir en markmiðin okkar eru skýr og áfangastaðurinn er skýr þannig að ég vonast til þess að það gangi og að við fáum, ef þetta mál verður samþykkt, ekki aðra eins skýrslu og Ríkisendurskoðun gaf út á dögunum þar sem framfylgd þeirrar stefnumótunar sem áður hefur verið mörkuð fékk falleinkunn.