áfengislög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998. Og ég vona að allir heyri hversu spennt ég er.
Með frumvarpinu er lagt til að smærri áfengisframleiðendum verði heimilt að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Nefndin fjallaði um þau jákvæðu áhrif sem talið er að sala á framleiðslustað geti leitt af sér út frá m.a. atvinnu-, ferðaþjónustu-, framleiðslu- og byggðasjónarmiðum og hvernig það myndi styrkja rekstrargrundvöll handverksbrugghúsa um allt land. Fyrir nefndinni var jafnframt fjallað um mikilvægi þess að fram fari heildstæð endurskoðun á áfengislöggjöfinni í ljósi þeirra breytinga sem hafa átt sér stað í samfélaginu með hliðsjón af aukinni alþjóðavæðingu, tækniframförum og á grundvelli EES-samstarfsins en einnig út frá lýðheilsusjónarmiðum. Meiri hluti nefndarinnar telur að með frumvarpinu sé stigið varfærið skref varðandi að heimila sölu á framleiðslustað að uppfylltum tilgreindum skilyrðum sem sé þó ekki til þess fallið að hafa mikil áhrif á aukið aðgengi að áfengi almennt. Þá telur meiri hlutinn að tilefni sé til að endurskoða áfengislögin á grundvelli heildstæðrar stefnumótunar í málaflokknum.
Þá fjallaði nefndin um forvarnir og áhrif frumvarpsins á áfengisneyslu, m.a. áfengis- og vímuefnavanda ungmenna og forvarnastarf vegna þess. Meiri hlutinn telur að frumvarpið feli í sér takmarkaðar heimildir á sölu áfengis, hún fari fram á afmörkuðu stöðum og hætta á aukinni neyslu og sýnileika áfengis sé ekki veruleg. Markmið þessara lagabreytinga sé hvorki að hrófla við hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins né þeirri áfengisstefnu sem hingað til hefur verið við lýði. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi forvarna en til fjölda ára hefur takmörkun á aðgengi áfengis vegna lýðheilsusjónarmiða verið leiðarljós við sölu á áfengi hérlendis. Mikilvægt er að fram fari mat á áhrifum stjórnvaldsaðgerða á lýðheilsu og beinir meiri hlutinn því til ráðherra að embætti landlæknis verði falið að framkvæma lýðheilsumat á áhrifum breytinganna og farið verði í mótvægisaðgerðir er slíkt mat liggur fyrir. Þá telur meiri hlutinn eðlilegt að gætt verði samræmis varðandi afgreiðslutíma hjá smærri áfengisframleiðendum og afgreiðslutíma Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í sveitarfélaginu.
Þá fjallaði nefndin um þau skilyrði frumvarpsins sem þarf að uppfylla til að fá framleiðslusöluleyfi, þ.e. varðandi tiltekið framleiðslumagn, hámarksstyrkleika vínanda og hráefni. Rætt var um hvort skilyrðin væru of íþyngjandi, m.a. með hliðsjón af jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, og hvernig eftirliti með þeim yrði háttað. Einnig komu fram sjónarmið um hvort frumvarpið fæli í sér mismunun sem bryti í bága við EES-samninginn. Meiri hlutinn undirstrikar að samkvæmt frumvarpinu er um lítið sölumagn og skýrt afmarkaða heimild til sölu að ræða. Þá bendir meiri hlutinn á að í 3. gr. frumvarpsins er tilgreint að ráðherra geti m.a. kveðið nánar á um framkvæmd eftirlits með starfsemi leyfishafa í reglugerð.
Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar að ráðherra skuli setja reglugerð sem kveði á um hámarksmagn drykkja sem heimilt er að selja í smásölu á framleiðslustað hverju sinni. Telur meiri hlutinn eðlilegt að vísa til þess fyrirkomulags sem viðhaft er í fríhöfnum á Íslandi, sem takmarkar magn með reiknireglu sem byggist á áfengiseiningum. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt í ljósi þeirra lýðheilsusjónarmiða sem komu fram við umfjöllun nefndarinnar, m.a. frá embætti landlæknis, að magntakmarkanir séu þær sömu og finna má í 4. gr. reglugerðar nr. 630/2008.
Í öðru lagi telur meiri hlutinn rétt að frumvarpið taki mið af hagsmunum allra smærri áfengisframleiðenda, þ.e. handverksframleiðenda, en sé ekki einungis bundið við sölu á áfengu öli. Því leggur meiri hluti nefndarinnar til breytingu á frumvarpinu þannig að heimilt verði að selja allar tegundir áfengis á framleiðslustað, að því gefnu að heildarframleiðsla leyfishafans sé undir tilteknu hámarki. Í tilviki áfengis sem er að rúmmáli meira en 12% af hreinum vínanda telur meiri hlutinn rétt að takmarka heildarframleiðslu leyfishafa við 100.000 lítra á ári. Rökin þar að baki eru þau að markmið frumvarpsins er að styðja við smærri áfengisframleiðendur og ekki er hægt að leggja sömu hámarksframleiðslu á almanaksári til grundvallar þegar leyfishafi framleiðir sterkara áfengi.
Þá telur meiri hlutinn rétt að kveðið sé skýrlega á um í lögunum að söluheimild sé einungis bundin við framleiðslu leyfishafa á framleiðslustað.
Aðrar breytingar sem meiri hlutinn leggur til eru tæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Kári Gautason og Hildur Jana Gísladóttir, með fyrirvara. Sigmar Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.
Eins og heyra mátti í upphafi ræðu minnar er ég, virðulegur forseti, einstaklega spennt því mér finnst líta út fyrir að núna í fyrsta skipti í mjög langan tíma séum við að ná saman um breytingar á áfengislöggjöfinni. Ég hef auðvitað lýst afstöðu minni til áfengislaganna í ræðum í gegnum tíðina frá því að ég tók sæti á þingi því að málið hefur nokkrum sinnum komið til umræðu. En í ljósi þess að við höfum ekki náð saman um að gera verulegar breytingar á áfengislöggjöfinni og fella niður einkasöluleyfi ÁTVR, eins og sú sem hér stendur myndi helst vilja, þá held ég að sú breyting sem hér um ræðir sé einstaklega ánægjuleg. Þetta er auðvitað bæði ákveðinn stuðningur og styrkur til þeirra sem eru í nýsköpun og framleiðslu á vöru sem er jú lögleg á Íslandi. Við höfum séð áhugaverða nýja tegund af ferðamennsku verða til á síðustu árum þar sem brugghús og framleiðendur á áfengum drykkjum hafa sprottið upp víða um land og eru að gera alveg ofboðslega flotta og góða hluti. Þessir aðilar hafa ítrekað komið fram og sagt að það hái þeim í þeirra starfsemi að geta ekki selt áfengi út heldur eingöngu fyrir þá sem koma inn á staðinn og neyta þar áfengis. Ég hef meira að segja heyrt sögur af því að ferðamenn komi til Vestmannaeyja, sem eru nú sögufrægar fyrir allt annað en bruggun á bjór, til að heimsækja ölbrugghús og smakka bjór og ætli svo að kaupa bjór til að fara með heim sem minjagripi. Spyr svo í leiðinni: Er eitthvað annað merkilegt við þessa eyju? Það er sem sagt ekki eins og þeir hafi komið þarna vegna eldgoss eða allra náttúruperlnanna, nei, heldur vegna brugghúss. Við erum að tala um nýja tegund af ferðaþjónustu og að mörgu leyti nýja tegund af einhvers konar landbúnaðarframleiðslu.
Ég er ofboðslega sátt við það að við í allsherjar- og menntamálanefnd höfum náð saman um þetta mál því að ég veit að sjónarmiðin eru að einhverju leyti ólík. Við höfum skipst á skoðunum og farið yfir hlutina. Mikilvæg breyting nefndarinnar á þessu frumvarpi er sú að við erum að útvíkka það frá því sem var í frumvarpi ráðherra þannig að allir þeir sem framleiða áfenga drykki geti selt frá framleiðslustað, ekki bara þeir sem framleiða bjór. Til að koma til móts við lýðheilsusjónarmið þá heimilum við ráðherra að setja í reglugerð hámark af því sem kaupa má. Ég átta mig alveg á því að fólk kunni að hafa skiptar skoðanir á því. En ég held að við séum með í höndunum ofboðslega gott mál og í ljósi þess að mál sem þetta hefur ekki hlotið afgreiðslu á þingi og ekki farið út úr nefnd þá fagna ég því mjög að við virðumst hafa náð saman og ég vona svo innilega að meiri hluti okkar í þingsalnum geti tekið undir með meiri hluta í allsherjar- og menntamálanefndar og ég legg áherslu á að það er víður meiri hluti. Það er ekki bara stjórnarmeirihlutinn heldur taka langflestir nefndarmenn í allsherjar- og menntamálanefnd undir þetta mál. Ég veit að það eru ekki alveg allir, það er minnihlutaálit. En það er einstaklega gaman að sjá svona breiða samstöðu verða til um mál eins og þetta.