áfengislög.
Forseti. Ég, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, fagna mjög þessu frumvarpi og vona raunar að hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hafi rétt fyrir sér í að þetta sé fyrsta gatið í einkaleyfi ríkisins til smásölu á áfengi. Ég hygg þó að svo sé ekki, svo hægt hefur gengið í frelsisátt í þessum málaflokki eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir vék að í kynningu sinni á málinu. Það verður með engu móti séð að þessi mikla ógn sem menn tengja við aðgengi að þessari vöru standist skoðun, sé þróun á Íslandi undanfarna áratugi skoðuð. Ég er ekki gamall en nógu gamall til að muna eftir Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins eins og hún var og það er ólíku saman að jafna í aðgengi að áfengi nú og var þá. Ég get hins vegar sagt að reynsla mín af eigin börnum og þeirra kunningjum sem og opinberum tölum sýnir að þrátt fyrir að aðgengi hafi batnað til mikilla muna á því tímabili hafi áfengismenning batnað til mikilla muna á sama tíma. Er ástæða til þess að vera með stífar reglur um aðgengi að vöru sem langsamlega stærstur hluti þjóðarinnar neytir án nokkurs sérstaks kostnaðar fyrir samfélagið sér til ánægju vegna þess að einhverjir eru haldnir sjúkdómi sem gerir það að verkum að þeir geta ekki stýrt sinni neyslu? Og nú vil ég taka fram að hér er á ferðinni sjúkdómur sem ég hef persónulega reynslu af hjá mér nákomnum. Hlýtur ekki alltaf að þurfa að takast á við það vandamál með öðrum hætti? Er það ekki heilbrigðismál? Erum við ekki á sömu villigötum raunar með viðbrögð okkar við fíkniefnavandanum? Hefur ekki tilgangslaus, kostnaðarsöm og á allan hátt vafasöm barátta í þeim málaflokki, sem ekki hefur viðurkennt vandamálið sem heilbrigðisvandamál frekar en aðgengisvandamál, verið uppspretta meiri vandamála en lausna?
Ég fagna mjög þessu frumvarpi og eins og ég sagði áðan þá vona ég að hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hafi rétt fyrir sér í að þetta sé fyrsta gatið á einkasölu ríkisins. Ég get í sjálfu sér tekið undir það sjónarmið sem í hans umfjöllun kom fram að auðvitað þarf að taka vandamálin tengd neyslu áfengis alvarlega. Þau verða hins vegar ekki leyst með því að takmarka aðgengið.