152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[17:37]
Horfa

Hilda Jana Gísladóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er samþykk frumvarpinu í öllum efnisatriðum en geri hér grein fyrir þeim fyrirvara sem ég gerði við breytingartillöguna sem kom fram rétt skömmu áður en málið var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd. Upphaflegt markmið frumvarpsins var að heimila smærri áfengisframleiðandum að selja bjór í smásölu á framleiðslustað að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Fyrir nefndinni var bent á að það væri óæskilegt að binda undanþáguna við bjór og þar með undanskilja aðrar víntegundir. Því lagði meiri hluti nefndarinnar til að skilgreining í 4. gr. frumvarpsins yrði útvíkkuð til að ná utan um sölu fleiri tegunda áfengra drykkja. Þar með var upphaflegt markmið frumvarpsins útvíkkað töluvert án þess að umsagnaraðilar fengju tækifæri til að bregðast við breytingartillögunni. Af þeim sökum geri ég fyrirvara við þessa breytingartillögu þó að ég sé að öðru leyti sammála öllum efnisatriðum í frumvarpinu.