152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[17:38]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum þar sem við erum að gefa áfengisframleiðendum tækifæri á því að selja sína eigin vöru á framleiðslustað eða í nærliggjandi húsum. Þetta skiptir máli vegna þess að síðastliðin ár hefur framleiðendum á þessu sviði fjölgað og nýsköpun verið mikil og þetta er sérstaklega á landsbyggðinni. Innlendir áfengisframleiðendur hafa margir hverjir lagt mjög mikla vinnu í að byggja upp gæðavöru og unnið til verðlauna og viðurkenninga og í því felst ákveðin landkynning. Þessum aðilum er ekki kleift að selja sína eigin vöru, þeir fá ekki hillupláss því vegna smæðar hafa þeir ekki fengið færi á að selja vörur sínar hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, eða ÁTVR, nema í mjög takmörkuðu magni. Þessu frumvarpi er ætlað að gera þeim kleift að selja sína eigin vöru á framleiðslustað en það er þó háð takmörkunum. Þetta getur stuðlað að atvinnuvexti og frekari atvinnumöguleikum um allt land.

Samt sem áður er það þannig að áfengi er ekki eins og hver önnur matvara og þetta frumvarp er takmörkunum háð vegna þess að við viljum takmarka aðgengi að áfengi vegna þeirra áhrifa sem það getur haft. Áfengi er skaðlegt vegna þess að það er vímuefni en það er löglegt vímuefni. Við erum með aldurstakmörk, sérstök vínveitingaleyfi og einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Það er til staðar vegna þess að við viljum hafa takmarkað aðgengi að áfengi.

Þessu frumvarpi er ætlað að auka jafnræði milli áfengisframleiðenda á Íslandi. Það hefur nefnilega ríkt mjög mikið ójafnræði á þeim markaði. Upphaflega var gert ráð fyrir því í þessu frumvarpi að við værum einungis að heimila sölu á áfengu öli, gerjuðu úr möltuðu eða ómöltuðu korni, sem væri að rúmmáli ekki meira en 12% af hreinum vínanda. Við í nefndinni breyttum því þannig að þetta væri óháð tegund, það þyrfti sem sagt ekki vera sérstaklega úr korni, möltuðu eða ómöltuðu. Nú er möguleiki á því að hafa það mjöð en einnig er núna möguleiki fyrir þá sem framleiða gin, viskí eða vodka, en það er gert á nokkrum stöðum á Íslandi. Við vorum þannig ekki að auka á ójafnræðið í þessu. En þetta er, eins og ég sagði, takmörkunum háð. Ef varan er með meira en 12% þá er framleiðslumagnið 100.000 lítrar en ef það er minna en 12% þá er magnið 500.000 lítrar. Ég tel þetta vera góða breytingu frá frumvarpinu eins og það kom fram fyrst. En ég tel samt, óháð þessu frumvarpi, að það sé kominn tími til að endurskoða áfengislöggjöfina í heild.(Gripið fram í: Heyr, heyr.) Við þyrftum að gera það með frelsi einstaklingsins í huga en líka lýðheilsu þjóðarinnar. Það þarf að fara að skoða það alveg frá grunni.