áfengislög.
Virðulegi forseti. Mig langar til þess að nýta jómfrúrræðu mína hér á hinu háa Alþingi til að lýsa yfir stuðningi við þetta góða frumvarp og ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að leggja það fram. Þetta er frelsismál sem skiptir miklu máli, sérstaklega fyrir landsbyggðina og ferðaþjónustuna. Í mínum huga er það svo sjálfsagður hlutur og eðlilegur hluti af starfsemi brugghúsa að þau fái að selja vörur sínar í smásölu frá framleiðslustað en ekki aðeins inni á veitingastöðum í gegnum veitingaleyfi, ekki síst í því ljósi að þessir framleiðendur eru mikið til einyrkjar og fjölskyldufyrirtæki og eiga í miklum erfiðleikum með að fá vörur sínar seldar í ríkiseinokunarfyrirtækinu ÁTVR. Í dag eru 25 handverksbrugghús í samtökum handverksbrugghúsa og flest þeirra eru einmitt á landsbyggðinni. Þetta frumvarp er því til þess fallið að styrkja fjölbreytta atvinnustarfsemi um allt land. Þetta ýtir undir atvinnusköpun og stuðlar að nýsköpun og í sannleika sagt er þetta löngu tímabær breyting sem enginn mun skilja í framtíðinni að hafi nokkurn tíma verið pólitískt bitbein hér inni. Það er a.m.k. mín bjargfasta trú.
Ég lýsi yfir sérstakri ánægju með breytinguna sem orðið hefur á frumvarpinu í meðförum þingsins þar sem innlendir smáframleiðendur að sterku áfengi og líkjörum sitja nú við sama borð og handverksbrugghúsin. En við þurfum að styðja enn betur við smáframleiðendur þessa lands og heimila netverslun með áfengi. Smáframleiðendur eiga erfitt með að tryggja nýjum vörum hillupláss í einokunarverslun ríkisins og það er skaðlegt fyrir starfsemi þeirra og það er skaðlegt fyrir samkeppnina. Áfengisframleiðsla brugghúsanna er alls ekki hátt hlutfall af heildaráfengisframleiðslu landsins. Frumvarpið mun fela í sér tiltölulega litla aukningu á seldu áfengi og það hróflar ekki við áfengisstefnu eða áherslum okkar í lýðheilsumálum. Við eigum að treysta fólki til að taka ákvarðanir fyrir sig sjálft um eigið líf og lífsstíl. Það þurfa að vera afar sérstök rök og mjög veigamikil fyrir því að skerða valfrelsi almennings í þessum málum sem og öðrum málum. Frumvarpið tryggir aukið jafnræði og er lyftistöng fyrir lítil samfélög. Það er fagnaðarefni fyrir ferðaþjónustuna. Það er fagnaðarefni fyrir landsbyggðina og að sjálfsögðu almennt fagnaðarefni fyrir alla neytendur í landinu.