152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[17:45]
Horfa

Kári Gautason (Vg):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum sem hefur oft verið tilefni til mikilla, langra og oft og tíðum góðra umræðna hér á þingi og það er sérstaklega ánægjulegt að geta tekið þátt í þessari umræðu. Einn af mínum uppáhaldsíhaldsmönnum, sem er að vísu ekki úr sama flokki og ég, sagði að það væri alltaf best að byrja á að skoða til hvers væri verið að breyta lögum. Þess vegna ætla ég aðeins að fara yfir það áður en ég fer í þær breytingar sem ég tel að nefndin hafi gert til batnaðar á málinu.

Það kemur fram í greinargerð þessa frumvarps að frumvarpinu sé hvorki ætlað að hrófla við hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins né þeirri áfengisstefnu sem hingað til hefur verið við lýði. Sú áfengisstefna sem hér er við lýði birtist m.a. í markmiðum áfengislaga sem er ekki að leysa þau vandamál sem leiða af áfengi í heild sinni heldur vinna gegn misnotkun og þar skiptir aðgengi máli. Það er svo hægt að diskútera fram og til baka hver stærð áhrifanna er sem er í rauninni frekar vísindaspurning en pólitísk og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Það er hins vegar óumdeilt að Ísland hefur náð miklum árangri á síðustu árum í að bæta áfengismenningu og ég tel, og held að það sé hægt að færa fyrir því gild rök, að aðgengi og hornsteinninn í áfengisstefnunni, ríkiseinkasala á áfengi, sé mikilsverð í þessu. Þá er einnig farið yfir það í þessum kafla greinargerðarinnar til hvers verið er að leggja þetta til. Það er bent á að síðasta áratuginn hefur verið mikil gróska í sérstaklega bjórbruggun í smærri brugghúsum víða um land, oft í dreifbýli. Bjóða þau upp á ákaflega bragðgóða vöru en hafa hins vegar lent í því að þau hafa getað boðið upp á kynnisferðir þar sem fólk getur komið og smakkað vöruna eða keypt á grundvelli vínveitingaleyfis en ekki keypt sér í smásölu til að taka með heim.

Á það hefur verið bent, og það er mikilsvert, að smærri brugghús eiga oft og tíðum í meiri erfiðleikum með að komast í sölu hjá ÁTVR. Því er með þessu frumvarpi leitast við að jafna þá stöðu. Þessi sjónarmið tek ég heils hugar undir. Það hefur áður komið fram í umræðunni hérna að það magn af áfengi sem selt er í þessum litlu brugghúsum er ákaflega lítið hlutfall af heildinni og að af því megi draga þá ályktun að það muni ekki hafa mjög mikil áhrif á heildarneyslu áfengis, sem er það sem skiptir einna mestu máli, að gera þessar breytingar. Ég tek undir það en til þess að það sé betur tryggt að svo verði þá eru breytingartillögur frá meiri hluta nefndarinnar sem eru t.d. um það að ráðherra skuli setja reglugerð sem setji magntakmarkanir. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt í ljósi þeirra ríku lýðheilsusjónarmiða sem eru undirliggjandi í þessu máli að þær séu þær sömu og finna má í 4. gr. reglugerðar nr. 630/2008. Það er mjög góð reglugerð sem kveður á um tollinn sem er öllum Íslendingum góðkunnur, að reyna að finna út hvað megi taka af hverju í fríhöfninni. Þetta held ég að sé mjög skynsamleg nálgun því að þarna nærðu meginmarkmiðum frumvarpsins, þ.e. að þessir litlu aðilar sem eiga í erfiðleikum með að komast í smásölu hafi þarna möguleika en þeir séu ekki ótakmarkaðir því að það myndi vinna gegn því sem kemur fram í greinargerð frumvarpsins, að það sé ekki tilgangurinn að hrófla við þeirri áfengisstefnu sem er við lýði og þar er hlutverk ÁTVR ótvírætt. Þá er einnig verið að gera þá breytingu að horfa ekki bara til brugghúsa með öl heldur skipti ekki máli hvers konar áfengi sé framleitt. Það er, held ég, mjög góð breyting því að annað væri að mínu viti ómálefnaleg mismunun.

Ég tel að það sé réttur farvegur þegar þetta mál hefur verið samþykkt að farið verði vandlega ofan í saumana á því hvernig til tekst og inn á það er komið í greinargerð í nefndarálitinu og stungið upp á því að embætti landlæknis geri lýðheilsumat á áhrifunum. Það þarf að gefa því tíma til að einfaldlega geta numið einhverja breytingu í neyslumynstri. Ég er nefnilega ekki á þeim stað að telja að það sé ástæða til að hringla neitt með þessi lög og það hefur verið bent á að það hafi ekki beinlínis verið neitt hringlað með þessi lög í gegnum árin. Það hafa orðið mjög litlar breytingar og þessi breyting er að mínu viti góð. Hún nær þarna jafnvægi milli sjónarmiða um frelsi einstaklingsins og lýðheilsusjónarmiða og það er virkilega ánægjulegt að geta tekið þátt í að ná einhverju jafnvægi þarna því að ég held að það sé mikilvægt. Að því sögðu held ég að hægt sé að fagna þessum málalyktum í málinu og verður gaman að greiða um það atkvæði hér síðar.