152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[17:52]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég er samþykkur þessu máli og tek undir það sem fleiri hafa sagt hér, ég vona að þetta sé fyrsti naglinn í þessa líkkistu sem núverandi áfengislöggjöf Íslendinga er. Hún er úrelt. Hún er ekki í neinu samhengi við nútímann. Hún tekur ekki neitt mið af þeirri tækni sem við búum við í dag og það er nauðsynlegt að endurskoða hana frá grunni. Þetta mál og sú staðreynd að það náðist a.m.k. sátt um það í allsherjar- og menntamálanefnd, og þá vonandi í þingflokkunum hér í þingsal á eftir, færir manni þá von að menn geti farið að breyta þessu öllu saman í stærri myndinni. Þessi löggjöf er úrelt til að mynda þegar kemur að auglýsingum þar sem íslenskir og erlendir fjölmiðlar sitja ekki við sama borð gagnvart sama neytandanum. Við getum talað um vefverslanirnar og þann sirkus sem hefur verið í kringum þær og hversu auðvelt er að fara fram hjá núgildandi löggjöf án þess að brjóta hana með nákvæmlega sömu niðurstöðu. Í því samhengi langar mig að nefna að mér finnst það leitt að þingmannamál hv. þm. Hildar Sverrisdóttur hafi ekki náð fram að ganga á þessu þingi. Það hefði sömuleiðis verið mikil bót í þessum málaflokki, finnst mér.

Þetta frumvarp snýst um að smávægileg sala á áfengi á framleiðslustað geti haft jákvæð áhrif á atvinnu, ferðaþjónustu, framleiðslu og byggðasjónarmið. Bent er á að það geti verið erfitt fyrir litla framleiðendur að koma vörum sínum að hjá ríkiseinokunarfyrirtækinu. Menn eru að nota alls konar rök fyrir því að geta fundið einhverja sátt í þessu máli. Mér finnst þetta hins vegar bara ofur einfaldlega snúast um frelsi. Mér finnst þetta snúast um skynsemi. Mér finnst þetta snúast um það að fullorðið fólk eigi að geta ráðið sér svolítið sjálft. Ef menn ætla að ná markmiðum sem þjóna einhverjum öðrum tilgangi, t.d. lýðheilsumarkmiðum, þá gera menn það með öðrum hætti heldur en því að vera endalaust að hafa vit fyrir fólki og reisa alls konar girðingar og múra úti um allt samfélag sem í raun og veru rjúfa ákveðinn sáttmála um að það eigi að vera sýnilegur tilgangur með reglunum. Svo er líka auðvelt að fara í kringum þetta allt saman og það er auðvitað gert miskunnarlaust. Þessi boð og bönn þjóna ekki tilgangi sínum og ná ekki því marki sem ætlast er til.

Ég er hlynntur því að þetta mál nái fram að ganga. Það er verið að setja inn hámarksmagn sem selja má á þessum stöðum. Hvar ætlum við að setja mörkin í því? Menn fundu þessa lendingu, ég get alveg stutt hana. Það má alveg færa rök fyrir því að mörkin eigi að vera annars staðar en þetta er bara fínt í nafni sáttarinnar og vonandi mun reynslan af þessu sýna okkur að við þurfum að endurskoða áfengislöggjöfina í heild sinni.

Ég hef talað fyrir því lengi og finnst það algerlega einboðið að við þurfum að skipta um kúrs almennt séð í þessum málum. Ríkisrekstur og ríkiseinokun er ekki trygging fyrir bættri lýðheilsu, mér finnst algerlega fráleitt að halda því fram og mér finnst allt í íslensku samfélagi benda til hins gagnstæða. Við getum líka séð þetta í nágrannalöndunum. Málum er skipað með ýmsum hætti í löndum Evrópu og heimsins og það er allur gangur á því hvernig áfengismenningin og áfengisneyslan er í viðkomandi löndum og það er ekki endilega samhengi þarna á milli vegna þess að það er fullt af öðrum þáttum sem spila mikið inn í lýðheilsusjónarmiðin heldur en bara aðgengi að áfengi. Mig langar líka að taka undir það sem hv. þm. Daði Már Kristófersson nefndi hér áðan, sem við þurfum svolítið að hafa í huga, að ef við spólum nokkra áratugi aftur í tímann og horfum á íslenskt umhverfi eins og það var þá, þá var drykkjumenning Íslendinga ömurleg. Það var drukkið óheyrilega mikið í einu, það var standandi fyllirí niðri í bæ, það var mikil ungmennadrykkja og drykkjusiðir landans voru þannig að erlendir fjölmiðlar gerðu sér stundum ferð hingað til að fjalla um þá. Þetta ástand ríkti þegar það voru miklu færri áfengisútsölustaðir heldur en nú er. Þessir áfengisútsölustaðir máttu hafa opið í skemmri tíma en nú er. Þeir máttu ekki hafa opið á laugardögum eins og nú er. Vínveitingastaðir voru miklu skertari hvað varðar opnun heldur en nú er, bara svo ég nefni það eitt. Í dag er opið á laugardögum sem var ekki þá. Það er verið að senda vín heim sem var ekki þá. Það er hægt að setjast inn á bar hér nánast allan sólarhringinn eða a.m.k. frá morgni til kvölds og fá sér bjór. Það var ekki hægt þá. Það var ekki hægt að fá sér bjór leyfilega. Samt var drykkjumynstrið og -menningin verri þá heldur en núna þegar aðgengi er miklu betra og allt annað. Mér finnst það segja ansi mikla sögu.

Ég er ekki að gera lítið úr lýðheilsusjónarmiðum, ég tek undir lýðheilsusjónarmiðin. Ég vil að börnum og ungmennum sé haldið frá áfengi og ég vil auðvitað að við öll umgöngumst þessa vöru af varúð og virðingu. En ef það er svona beint samhengi á milli þessara lýðheilsusjónarmiða og aðgengisins þá finnst mér einboðið að við komumst ekki fram hjá þeirri röksemd að það sé bara einfaldast að banna áfengi. Menn hljóta þá að geta tekið það skref í anda bættrar lýðheilsu en það dettur auðvitað engum í hug að fara þangað. Á sama tíma geta menn klórað sér í kollinum yfir þeirri furðulegu staðreynd að lögreglan var að haldleggja ævintýralegt magn af fíkniefnum sem eru bönnuð, ævintýralegt magn, þannig að við sjáum alveg að bann eitt og sér eða miklar aðgengishindranir skila ekkert endilega því sem við erum að reyna að ná. Við hljótum alltaf að velta fyrir okkur forvörnum og því að ná til fólks með skynsemi þegar við erum að reyna að hafa áhrif á neyslu þess. Forvarnir og fræðsla eru algjört lykilatriði í þessu og það er sú leið sem við fórum til að bæta þessa slæmu drykkjumenningu sem ríkti fyrir nokkrum áratugum og ég var að lýsa, á sama tíma og við jukum aðgengi að þessari neysluvöru.

Það eru langflestir, eins og kom fram hér áðan, sem nota þessa vöru bara vel, nota hana af skynsemi og drekka sér ekki til óbóta eða í miklu óhófi. Þá verðum við að hafa það í huga að það er ákveðin prósenta landsmanna sem eru með sjúkdóm sem heitir alkóhólismi. Þetta er algjört lykilatriði. Þetta er sjúkdómur. Heilinn í þessu fólki er öðruvísi heldur en heilinn í öðru fólki. Mér finnst alltaf klént þegar þessi hópur, þessi sjúklingahópur, er notaður sem einhvers konar rök þegar kemur að aðgengismálum. Ég þekki sjálfur þennan sjúkdóm mætavel og ég get alveg fullvissað fólk um það að veikur alkóhólisti í þörf fyrir vímuefni eða áfenga drykki myndi skríða á milli landshluta eftir því. Einhverjar aðgangshindranir í opnunartíma eða takmarkanir á prómillum til og frá hér og þar breyta engu hvað varðar framgang þessa sjúkdóms. Það held ég að sé alveg hægt að slá út af borðinu. Það er heilbrigðisvandamál að vera með þennan sjúkdóm. Við eigum að tækla það sem heilbrigðisvandamál. Við eigum ekki að nota áfengislöggjöfina til þess að reyna að hafa áhrif á þennan sjúkdóm vegna þess að það er ofur einfaldlega ekki hægt. Við eigum að beita skynsemi og við eigum að leyfa þeim sem kunna fótum sínum forráð að búa við ákveðið frelsi í þessum málum. Þeir sem eru veikir fyrir áfengi og eru alkóhólistar þurfa að nota önnur bjargráð. Það er ekki hægt að halda þeim frá sínum sjúkdómi með einhverjum aðgangshindrunum eins og eru allt of víða í okkar samfélagi. Það er bara þannig.

Það er mikil íhaldssemi í gangi í okkar samfélagi og hefur verið og við sjáum það bara á mjög mörgum málum og auðvitað á ákveðin íhaldssemi rétt á sér og hún er stundum mikilvæg og hún er oft skiljanleg. Ég skil að sumu leyti íhaldssemi þegar kemur að þessum málum. Það er mjög auðvelt að óttast breytingar og það er mjög auðvelt að setja í kollinum þetta samasemmerki á milli aðgengis og aukinnar neyslu. En þetta er hins vegar ekki svo einfalt eins og ég var að nefna áðan. Þess vegna segi ég: Samþykkjum þetta mál, vonumst til þess að það verði til þess að öðrum pörtum áfengislöggjafarinnar verði einnig breytt, að við umgöngumst þessa vöru sem neysluvöru sem flestir Íslendingar nota sér að skaðlausu. Við setjum upp girðingar gagnvart börnum og ungmennum á réttum stöðum. Við komum fram við fólk af virðingu sem er með sjúkdóm og kann fótum sínum ekki forráð þegar kemur að áfengi og nálgumst það með öðrum hætti; í gegnum heilbrigðiskerfið og með forvörnum og með því að fjölga úrræðum á þeim enda. Treystum fólki. Þetta er fínt mál og ég styð það heils hugar.