152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[18:02]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Loksins, loksins, leyfi ég mér að segja. Málið lætur kannski ekki mikið yfir sér en er samt fyrsta glufan sem við myndum lögfesta gegn undanþágu íslenska ríkisins frá EES-samningnum varðandi einokun ríkisins á smásölu með áfengi, fyrsta glufan og því ber að fagna. Það er fyrsta skrefið í átt að meira frelsi, meiri nútíma, aðeins meiri sveigjanleika og þrátt fyrir að frelsismálið eða frelsisangi þessa máls sé kannski ekki gríðarlega stór miðað við hversu afmarkað málið er þá skiptir það samt afskaplega miklu máli.

Við í Sjálfstæðisflokknum höfum talað fyrir auknu frelsi varðandi áfengislöggjöfina í svo mörg ár og áratugi að við erum orðin hás en við höfum aldrei fengið að standa hér í þessum þingsal við þinglok með nefndarálit meiri hluta í höndunum, þverpólitíska samstöðu að mestu leyti, þannig að okkur batnar kannski í hálsinum á næstu vikum alla vega.

Frelsinu fagna ég en þetta mál er miklu meira en bara það og málið hefur auðvitað í grunninn verið lengi unnið af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Það var fyrst komið fram með það af hálfu þáverandi dómsmálaráðherra, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, og núna aftur af hálfu dómsmálaráðherra, Jóns Gunnarssonar, og var það gott þegar það var lagt fram en svo batnaði það svona svakalega í meðförum þingsins. Það er svo gaman að upplifa það þegar þingheimur sjálfur tekur það upp hjá sjálfum sér að stíga frelsisskref. Því ber að fagna að málinu er breytt úr því að eiga bara við um bjórbrugghús yfir í að ná til allra íslenskra framleiðenda sem framleiða áfengi á sínum afmörkuðum stöðum, það mun skipta þessa aðila gríðarlega miklu máli.

Í ákvæðinu er sem sagt ekki bara frelsi þó að ég sé upptekin af því. Eins og hefur verið komið inn á, m.a. í mjög fínni jómfrúrræðu Björgvins Jóhannessonar samflokksmanns míns, eru jákvæðu áhrifin miklu fleiri. Þau snúast um ferðaþjónustu, atvinnumál, framleiðslu og byggðasjónarmið, sérstaklega gagnvart þessum litlu aðilum sem frumvarpið gerir kröfu um að séu afmarkaðir, sem er vel. Þeir eiga ofboðslega erfitt í samkeppni við hina ríkisreknu vínverslun, það er bara þannig og það verður að vera haft í huga þannig að þetta er mikilvægt ferðaþjónustumál. Þetta er mikilvægt framleiðslumál fyrir þessa aðila varðandi þeirra rekstrargrundvöll.

Að því nefndu langar mig að fá að nefna að ég hnaut um að í málinu ætti mögulega að afmarka opnunartímann í takt við opnunartíma ÁTVR. Mig langar að fá að nefna hér að ég myndi vilja að það yrði skoðað betur þegar stigin eru frekari skref varðandi þetta mál því að ég held að t.d. smærri aðilum úti á landi sem oft fá til sín hópa af ferðamönnum að kvöldi til þætti kannski synd eða ég þykist vita að þeim þætti eflaust synd að geta ekki nýtt þessa heimild til að bjóða þeim að kippa með sér flösku eða tveimur eftir þá kynningu. Mér skilst að þetta sé eitt af þeim atriðum sem verða útfærð nánar í reglugerð þannig að ég fæ að nefna hér að ég vonast til þess að það verði skoðað betur með markmið laganna í huga um hvernig þetta er fyrst og fremst gert. Miðað við afmörkun málsins og smæð þess í rauninni þá held ég að við getum leyft okkur svona smá sveigjanleika án þess að hafa miklar áhyggjur af því að allt fari hér úr böndunum.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég tek undir flestallt sem hér hefur komið fram hjá þeim sem styðja málið ef ekki bara allt saman. Mig langaði að fá að nota tækifærið og segja að hér á þessum þingvetri voru tvö svokölluð áfengismál til umræðu. Annað þeirra var mál sem ég lagði fram um netverslun á áfengi sem náði því miður ekki fram að ganga í þessum þinglokasamningum. En ég vil fá að segja hér svo það sé algjörlega á kristaltæru að það að þetta mál sé komið hingað á þennan stað þykir mér mjög góð sárabót, þetta eru frábærar fréttir, en svo verðum við að halda áfram að stíga næstu skref. Við verðum að ná betur utan um stöðu áfengismála og fyrirkomulagið, það er bara verkefnið. En mikið ofboðslega er þetta góð byrjun.