152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áfengislög.

596. mál
[18:08]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Frú forseti. Ég væri ekki samkvæm sjálfri mér ef ég kæmi ekki upp undir þessu máli þó að ekki væri nema til að fagna því og klappa fyrir því. En ég veit að það er ekki viðeigandi í þessum sal. Ég iða hreinlega í skinninu eftir að fá að greiða atkvæði með þessu máli. Við höfum rætt það hér og það verður rætt hér í þessum sal hver þessi jákvæðu áhrif eru; það er þessi stækkandi atvinnugrein, ferðaþjónustan, byggðasjónarmiðin, allt þetta er jákvætt, en það er einkum frelsið, þetta litla skref og hversu stórt í rauninni það er fyrir okkur frelsisþenkjandi fólkið.

Það var tvennt sem mig langaði aðeins að koma inn á. Það var annars vegar varðandi forvarnirnar. Það er mikið fjallað um lýðheilsu í áliti nefndarinnar og ég skil það vel. Það er yfirleitt það sem við nefnum alltaf þegar við ræðum áfengismálin; þá förum við alltaf að tala um forvarnir og fræðsluna. Hvað varðar þann glæsta árangur sem við höfum náð í neyslu ungmenna á áfengi, hvað hún var orðin lítil, þá verð ég að segja að mér finnst ólíklegt að ungmennin muni fara að fjölmenna í íslensku handverksbrugghúsin á landsbyggðinni, ég ætla bara kasta því hérna út. Það verður eftir sem áður bannað að selja fólki undir tvítugu áfengi. Ég segi fólki, ekki börnum, af því að börn eru yngri en 18 ára.

Svo er einmitt líka áhugavert í álitinu að það er talað um opnunartíma ÁTVR og að það eigi að vera sambærilegur opnunartími hjá þessum brugghúsum á framleiðslustað. Það er eiginlega ofboðslega furðuleg pæling þegar staðirnir eru stundum ekki opnir um helgar úti á landi, jafnvel bara á milli tíu og tvö, þannig að þetta er eitthvað sem þarf að taka til skoðunar og skoða hvernig þetta geti raunverulega fúnkerað þar sem þessi brugghús eru.

Svo langaði mig líka að setja spurningarmerki við hámarksframleiðslumagn upp á 500.000 lítra á ári. Af hverju ekki milljón? Af hverju ekki meira? Af hverju göngum við ekki lengra? Af hverju að útiloka eitt brugghús af þessum 25 íslensku brugghúsum? Ég vildi að við hefðum tekið það skref að hafa það inni. En hins vegar er þetta lítið skref í átt að meira frelsi. Ég er sátt. Ég er mjög ánægð og mjög spennt að fá að greiða atkvæði með þessu máli. Það verður ekki einungis opinber starfsmaður sem þarf að selja manni bjórinn, sem er mjög gott. Og eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir sagði áðan: Þetta er þessi glufa, það er ljósglæta í þessum málum. Okkur er að takast að opna þetta aðeins eftir 100 ára einokun.