152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

tollalög.

9. mál
[18:12]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, um niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Með frumvarpinu er lagt til að tollar af vörum sem fluttar eru inn á tollsvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu falli niður til og með 31. maí 2023.

Nefndin er einhuga um afgreiðslu málsins og vitnar, með leyfi forseta, til ávarps forseta Úkraínu á Alþingi í maí síðastliðnum:

„Augljóst er að stríð Rússa gegn Úkraínu er ekki aðeins tilraun til að sölsa undir sig landið og að slökkva líf, það er árás á frelsið sjálft. Þess vegna er mikilvægt fyrir frjálsar þjóðir heims að Úkraína verði ekki skilin eftir á berangri og berjist þar ein og afskipt við Rússland. Það er mikilvægt að allar þjóðir leggi hönd á plóg. Ég er þakklátur fyrir þau skref sem þjóð ykkar hefur nú þegar stigið, sérstaklega með því að styðja viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Ég þakka einnig fyrir margvíslegan stuðning sem þið hafið sýnt okkur og heiti á ykkur að láta ekki þar við sitja.“

Frumvarpið er mikilvægur og táknrænn stuðningur við Úkraínu. Heildartollverð innfluttra vara frá Úkraínu til Íslands nam 550 milljónum kr. árið 2021. Enginn innflutningur var á landbúnaðarvörum.

Við látum ekki okkar eftir liggja og ég vitna aftur til ræðu forseta Úkraínu, með leyfi forseta:

„Engu skiptir hvort um ræðir lítil ríki eða stór, þegar við berjumst fyrir frelsinu skiptir framlag allra máli.“

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita Ágúst Bjarni Garðarsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.