152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

fiskveiðistjórn.

386. mál
[20:51]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér greiðum við atkvæði um að renna styrkari lagastoð undir eftirlit Fiskistofu sem er afar mikilvægt að sækja og tryggja, að það sé öruggur lagagrunnur fyrir þessu mikilvæga eftirliti. Þarna er um að ræða mjög mikilvægan þátt í því að geta tryggt örugga og ábyrga umgengni við auðlindir sjávar. Ég vil enn og aftur þakka uppáhaldsnefndinni minni, sem heitir atvinnuveganefnd, fyrir mjög góða vinnu.