stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.
Hæstv. forseti. Þetta mál um geðheilbrigðisstefnu og það mál sem við samþykktum hér á undan, um stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða, eiga það sammerkt að hér er mótuð stefna, sýn og markmið þar sem er lagður grunnur að vinnu við aðgerðaáætlun. Umfjöllun þingsins er auðvitað afar mikilvæg og ég met mikils þær ábendingar og áherslur sem fram hafa komið og munu nýtast vel við þá vinnu við aðgerðaáætlanir sem fram undan eru. Þá tek ég heils hugar undir þær breytingar sem lagðar eru til, m.a. við geðheilbrigðisstefnuna hér í þessu máli um skráningu upplýsinga og í takt við umrædda skýrslu ríkisendurskoðanda. Það var afar brýnt að klára þessi mál og ljúka á þessu þingi svo hægt verði að fylgja aðgerðaáætlunum eftir af fullum þunga og fyrir það vil ég þakka þinginu, virðulegur forseti, og hv. velferðarnefnd fyrir mjög gagnlega umfjöllun og góða vinnu.