152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.

575. mál
[20:57]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna að sjálfsögðu þessari stefnu og þessari áætlun. Það sem ég sakna þaðan og úr stefnu stjórnvalda yfir höfuð í þessum málum er að við stefnum að því, með hvaða hætti sem það er, að afnema beitingu nauðungar í geðheilbrigðismálum. Þetta er að mínu mati enn þá svartur blettur á því hvernig við erum að kljást við þessi mál. Við eigum að vera komin miklu lengra. Við erum komin með þekkinguna til að vera komin lengra og ég tel tímabært að setja það fast niður að það sé stefna okkar að hætta algerlega nauðung í geðheilbrigðismálum. Ekki minnka hana, hætta henni.