stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022--2036.
Virðulegur forseti. Ég vildi koma aðeins hingað upp og þakka fyrir skjóta afgreiðslu þingsins á þessari tillögu sem vissulega var lögð fyrir þingið fyrir einu ári en tók síðan breytingum vegna nýs stjórnarsáttmála og annarra breytinga sem hafa orðið. Hún er unnin í sama anda og núverandi byggðaáætlun sem hefur verið í gildi og hefur nokkuð vel verið tekið. Þetta snýst jú um að jafna aðgengi að þjónustu, að það sé jöfn grunnþjónusta um landið, að það séu jöfn tækifæri til þess að skapa sér vinnu hvar sem við búum og einnig að tryggja að það sé sjálfbær byggð. Það eru meginmarkmið þessarar byggðaáætlunar, þessi þrjú, og undir þeim fjölmargar greinar, 15 ára stefna, fimm ára aðgerðaáætlun og ég vil bara þakka þinginu fyrir skjót viðbrögð. Ég veit að eftir þessari áætlun er beðið víða til að hægt sé að fara að vinna eftir henni eins og þeirri sem er að renna sitt skeið.