hjúskaparlög.
Virðulegur forseti. Það var nokkuð ánægjulegt fyrir mig sem nýjan þingmann að verða vitni að vinnubrögðum Alþingis í þessu máli. Það var samhljómur meðal nefndarmanna allsherjar- og menntamálanefndar um að þetta frumvarp væri réttarbót fyrir fólk í viðkvæmri stöðu og hafi allir nefndarmenn þökk fyrir það. Ég kann formanni nefndarinnar sérstakar þakkir, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir að vera lausnamiðuð þegar leysa þurfti hnúta og lagatæknileg atriði og vil svo sérstaklega þakka starfsmönnum þingflokka Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks sem lögðu á sig talsvert erfiði þegar íslensk stjórnsýsla og embættismennska fór á óþarfa yfirsnúning að mínu mati, en það fannst lausn. Menn settust niður og fundu lausn sem allir gátu sætt sig við. Þetta er afbragðsgott mál og ég hvet þingheim til að samþykkja það.