tollalög.
Virðulegi forseti. Efnahags- og viðskiptanefnd var einhuga við afgreiðslu á þessum mikilvæga og táknræna stuðningi við Úkraínu. Öll hagsmunagæsla sem er haldið uppi í andstöðu við slíkan stuðning er í besta falli óviðeigandi og er aldrei hægt að skoða öðruvísi en í samhengi við þær fórnir sem úkraínska þjóðin hefur fært og færir áfram fyrir okkar gildi, fyrir okkar heimsmynd. Þetta stríð í Evrópu og aðdragandinn að því hefur sannarlega þjappað þjóðum saman en líka afhjúpað til að mynda hvernig sum forysturíki ESB hafa reynt að skorast undan framlagi og fórnum. Ég er stolt af samróma álit þingmanna um að Ísland eigi ekki að skorast undan sinni ábyrgð og greiði glöð atkvæði með þessu máli.