152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

tollalög.

9. mál
[21:34]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil taka eindregið undir með efnahags- og viðskiptanefnd um það að við eigum að afgreiða þetta mál. Það skiptir máli að senda skýr skilaboð, táknræn skilaboð. Þó að þetta mál í sjálfu sér hafi í rauninni engin áhrif og það muni væntanlega ekki mikið reyna á það þá skiptir máli að við í þessum málum tökum ótvíræða afstöðu með fólkinu í Úkraínu sem líður miklar hörmungar vegna ofríkis Rússa og grimmdarverka Rússa. Þetta er ein leið til þess og þess vegna styð ég þetta mál eindregið og segi já.