áfengislög.
Virðulegur forseti. Það er stundum sagt að dropinn holi steininn og ég held að það eigi alveg sérstaklega við í þessu máli. Ég hef verið hér á þingi síðan 2007 og ég held ég hafi verið meðflutningsmaður á öllum áfengisfrumvörpum sem hafa komið fram sem hafa verið, á hverju einasta þingi, fyrst og fremst frá okkur Sjálfstæðismönnum, en einhverjir hafa tekið þau og ljósritað þau og flutt þau einnig. En hér eru tímamót í þessum málum og ég vil fagna því alveg sérstaklega hvað mikil samstaða er um þessar breytingar í þinginu. Það gefur auðvitað væntingar um að það sé orðið ljóst að það er tímabært að endurskoða þá löggjöf sem við búum við í þessum málum. Hún stenst enga tímans tönn og þær breytingar sem hafa orðið í okkar samfélagi og í kringum okkur gera kröfur til þingsins um að axla þá ábyrgð að innleiða breytingar í takt við nýja tíma.
Ég vil þakka nefndinni alveg sérstaklega vel fyrir vel unnin störf í þessu máli. Ég fagna sérstaklega þeim breytingum sem nefndin hefur verið að gera og þeirri tillögu, sem virðist vera samstaða um í nefndinni, svo langt sem það nær, sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir leggur hér fram. Það er okkar hjá framkvæmdarvaldinu að fara eftir því, að framkvæma vilja þingsins. Þannig fagna ég því að gildistakan verði í sumar. Eflaust gerir það miklar kröfur á ákveðinn undirbúning sem þarf að eiga sér stað í þessum málum en við öxlum þá ábyrgð.