152. löggjafarþing — 92. fundur,  15. júní 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[22:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um þingsályktunartillögu um tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks. Í tillögunni er lagt til að forsætisráðherra láti framkvæma tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks og hún verði kynnt Alþingi á vorþingi 2022. Þá verði tillögunni vísað til stöðuskýrslu ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur um einföldun gildandi regluverks frá september 2014. Meiri hlutinn tekur undir með hv. þingmönnum um að einfalda þurfi regluverk. Hins vegar er fyrirséð að forsætisráðherra yrði ómögulegt að framkvæma efni ályktunarinnar innan tímamarka tillögunnar. Þá telur meiri hlutinn ekki æskilegt að slíkar aðgerðir og gerð áætlana byggist á stöðuskýrslu sem gerð var fyrir tæplega átta árum. Margt hefur breyst innan íslensks stjórnkerfis og þurfa slíkar aðgerðir að grundvallast á nýjustu gögnum og upplýsingum sem völ er á.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera úttekt á nauðsyn þess að regluverk verði einfaldað.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Orri Páll Jóhannsson.