152. löggjafarþing — 92. fundur,  15. júní 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[22:46]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það geti flestir, eða vonandi flestir, í þessum þingsal tekið undir megininntakið í tillögum Miðflokksins í þessum málum, að einfalda regluverk. Nú er verið að fara með þessa tillögu gamalkunnuga leið, það er búið að semja um þetta og allt það, að vísa þessu til ríkisstjórnarinnar. Ég vil spyrja hv. þm. Sjálfstæðisflokksins hvort það verði ekki örugglega þannig að þessi tillaga sem verður vísað til ríkisstjórnar verði tekin alvarlega en ekki sett ofan í skúffu, að það verði raunverulega með þann mikla vilja sem ég veit að er af hálfu Sjálfstæðisflokksins — þetta er nauðsynlegt að einfalda regluverk fyrir fólk, fyrir fyrirtækin í landinu, fyrir stjórnsýsluna.

Þannig að mín spurning er þessi: Er ekki alveg öruggt að Sjálfstæðisflokkurinn mun sjá til þess að inntak þessarar tillögu haldist lifandi?