tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og jú, ég held að mér sé óhætt að segja það. Þó að ég hafi verið stutt hér og þekki ekki þau bellibrögð sem er alltaf verið að vísa til þá er þetta nú ein ástæða þess að ég fór út í stjórnmál, þetta er eitt af meginmarkmiðum með veru minni hér, þannig að ég mun a.m.k. ekki láta mitt eftir liggja.
Í þessari umræddu tillögu er vísað til þess að undanfarin ár virðist hafa dregið úr áherslum ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda á því að einfalda regluverk. En gerðir ríkisstjórnarinnar, bæði þessarar og síðustu, sýna svo ekki verður um villst að það hefur verið lögð mikil áhersla á að einfalda regluverk. Þótt skammt sé liðið á tíma þessarar ríkisstjórnar þá er þegar hafin vinna í ráðuneytum við að greina og einfalda áfram regluverk og líka hjá fagstofnunum ráðuneyta. Markmiðasetning varðandi einföldun regluverks kemur skýrt fram í fjármálaáætlun. Þetta eru bara nokkur dæmi. Svo er hægt að nefna dæmi frá síðasta kjörtímabili þar sem m.a. var farið í, að mig minnir, á annað þúsund niðurlagningar reglna og reglugerða til einföldunar regluverks í atvinnuvegaráðuneytinu. Þannig að stutta svarið er: Jú.