tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar og bjartsýnina og trúna. Ég vil bara deila þeirri von með hv. þingmanni að svo verði áfram þó að fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar, sem er sama gamla ríkisstjórnin, hafi verið það táknræna skref að fjölga ráðuneytum, stækka báknið. Ég er því ekkert endilega vongóð hvað það varðar þegar það eru fyrstu skrefin að leggja til ekki bara fjölgun ráðuneyta heldur útgjöld á þessu kjörtímabili upp á hátt á þriðja milljarð króna með því að fjölga stólum, sem er kannski dýrasti stólaleikur síðari tíma, en það er önnur saga. Ég ætla bara að segja við hv. þingmann: Guð láti gott á vita. Auðvitað munum við fylgjast mjög vel með þessu. Ég veit að Miðflokksmenn munu gera það líka. En við leggjum mikla áherslu á þetta mál og Viðreisn mun ýta á eftir því að þessu verði fylgt eftir. Ég vonast til þess að ég sjái þá hv. þingmann hér í ræðupúlti geta farið yfir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar í þá veru að einfalda regluverk fyrir fólk, fyrirtæki, heimili og atvinnulíf í landinu.