tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Ég vona líka að ég haldi áfram að halda í þessa bjartsýni og trú og lengur en hv. þingmaður, sem virðist hafa glatað einhverju af þeirri bjartsýni og trú. Ég ætla ekki að fara að kýta við hv. þingmann um stækkun báknsins eða fjölgun ráðuneyta, til þess gefst ekki tími. Okkur gefst heldur ekki tími til að fara yfir ESB, það kom mér talsvert á óvart að hv. þingmaður hafi ekki náð að skjóta því inn í svarið. (Gripið fram í.) Það verður næsti hringur. Við erum bara sammála um það, ég og hv. þingmaður, að við viljum einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings og ég hef fulla trú á því, full bjartsýni, að við tökum höndum saman og fylgjum þessu fast eftir.