152. löggjafarþing — 92. fundur,  15. júní 2022.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

143. mál
[22:51]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það er ástæða til að þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd og framsögumanni fyrir vinnu við þetta mál og raunar einnig efnahags- og viðskiptanefnd síðasta kjörtímabils, þáverandi formanni þeirrar nefndar, Óla Birni Kárasyni, sem tók ágætlega í málið. En það er greinilega mjög flókið að einfalda regluverk og þess vegna hefur þurft að mæla fyrir þessu máli ítrekað, því að frá því að vinna fór af stað fyrir alvöru árið 2013 og 2014 við einföldun regluverks og að taka á bákninu hefur ekki mátt líta af framvindu málsins, eins og dæmin sanna. Þó tókst að vinna heilmikla og góða vinnu á báðum sviðum að því marki að gefin var út sérstök handbók fyrir ríkisstofnanir um hvernig þær ættu að spara og draga saman í rekstri, og eins aðgerðaáætlun varðandi einföldun regluverks og minna bákn. En eins og ég segi, herra forseti, það má ekki líta af þessu.

Fyrir vikið þá verður algjörlega nauðsynlegt, og í ljósi reynslunnar, að fylgjast með framvindu málsins, verði því vísað til ríkisstjórnarinnar, eins og lagt var til í máli framsögumanns. Þar var reyndar haft orð á því að það væru svo mörg ár liðin frá árinu 2014. Það var notað sem ástæða fyrir því að nýta ekki þá vinnu sem hafði farið fram, sem þó var mjög mikil og góð og síðan þá hefur auðvitað bara bæst við verkefnið, eins og getið er um í tillögunni. Það er ástæðulaust að vera stöðugt að henda góðri vinnu og byrja upp á nýtt. Það má kannski minna á í því samhengi að rammaáætlun, sem við vorum að samþykkja hér fyrr í dag, er orðin álíka gömul, hið minnsta, í grunninn. Engu að síður er jákvætt að ríkisstjórnin skuli ekki einfaldlega leggja til við sitt lið, sinn liðsstyrk, sína hv. þingmenn, að málið sé fellt, eins og hefur stundum gerst með góð mál.

Líklega verður maður að sýna því ákveðinn skilning að ríkisstjórnir, og ekki hvað síst þessi ríkisstjórn sem þó fór af stað með fyrirheit um eflingu Alþingis, eigi erfitt með að samþykkja tillögur sem koma utan að, koma frá einhverjum öðrum en ráðherrum og ráðuneytum. En á sama tíma gerir hún kröfu um fylgispekt við allar nýju lagabálkana og allar nýju lagaflækjurnar sem verið er að bæta við jafnt og þétt og hefur reyndar, eins og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom inn á hérna áðan, verið með allra mesta móti í tíð þessarar ríkisstjórnar, nýjar lagaflækjur og sívaxandi bákn. Sívaxandi báknið hefur aldrei verið stærra og stækkar jafnt og þétt ár frá ári og ekki hvað síst forsætisráðuneytið sjálft sem, eins og ég hef nefnt hér í annarri ræðu, hefur stækkað meira í tíð þessarar ríkisstjórnar en einhverja áratugi þar á undan samanlagt.

Ég held hins vegar áfram að vona að þessi ríkisstjórn og þeir flokkar sem hér áður fyrr kenndu sig við einfaldara kerfi og minna bákn, muni á einhverjum tímapunkti vakna og kannski mun þetta hjálpa til við það. En þá hvet ég engu að síður til að nýta þá vinnu sem fór fram áður við það verkefni en ætla sér ekki einfaldlega að byrja upp á nýtt og taka það mikinn tíma í þetta að málið deyi í kerfinu, eins og gerist oft á tíðum. Það var ástæðan fyrir því að við vildum nýta þá vinnu sem fyrir var og bættum þar við tillögum og lögðum til að ríkisstjórninni yrði falið að framkvæma þetta. Þess vegna er þessi tillaga um að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar áhugaverð því að í rauninni lögðum við til að ríkisstjórninni yrði falið að framkvæma verkefnið vitandi það að ef það yrði ekki með þeim hætti að ríkisstjórnin fengi að gera þetta sjálf þá væru stjórnarliðar ólíklegir til að samþykkja málið.

Að því sögðu er það ánægjulegt að ríkisstjórnin skuli leggja til að málinu verði vísað til sín og vonandi vinnur hún það áfram. En eins og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nefndi hér áðan þá mun ekkert veita af því að fylgjast með framgangi málsins og sjá hvort þessari ríkisstjórn og stjórnarflokkunum takist að taka U-beygju í þessu máli, eins og hún hefur reyndar gert í svo mörgum öðrum málum, og hætti að stækka báknið og hætti að flækja regluverkið og fari í staðinn að vinna að því að draga úr því og einfalda það. Ég a.m.k. mun óska ríkisstjórninni góðs gengis við það, en ég og aðrir þingmenn munum fylgjast með framvindu málsins.