tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðuna og brýninguna. Af því að hann nefndi að það væri ástæðulaust að henda góðri vinnu og byrja upp á nýtt þá var það bara tilvísun í að margt hefði gerst og breyst síðan 2014, samanber m.a. tiltektina í atvinnuvegaráðuneytinu 2020, svo það hefur ekki bara verið bætt í. Það er þess vegna engin þörf á U-beygju heldur frekar að við herðum róðurinn. Mig langaði bara til að taka undir með hv. þingmanni varðandi það að það megi ekki líta af stjórnvöldum. Það má sannarlega ekki líta af stjórnvöldum og þar erum við öll hér í þinginu saman í liði, í eftirliti með framkvæmdarvaldinu. Ég má til með að hrósa hv. þingmönnum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Bergþóri Ólasyni fyrir umfjöllunina og brýninguna varðandi EES-samninginn í tillögunni því að það er auðvitað óumdeilt að EES-samningurinn hefur verið til verulegs gagns og ávinnings fyrir Ísland. Þá er vel hægt að taka undir skammir í garð stjórnvalda varðandi þá tilhneigingu að bæta í við innleiðingu reglna, svokallaða gullhúðun. Ég vil bara taka heils hugar undir þær athugasemdir.