tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Herra forseti. Ég veit að það liggur á að klára þennan fund og þetta verður bara örstutt og raunar frekar meðsvar en andsvar. Ég vona að hæstv. forseti fyrirgefi það. Hv. þingmaður kom með ýmsar ágætar áréttanir en þá árétta ég bara á móti að rétt eins og við getum um í tillögunni er lagt til að þótt menn nýti reynslu fortíðar og þá vinnu sem hefur verið unnin verði tekið tillit til þróunar að undanförnu, undanfarin misseri og ár. Það er vissulega rétt að ríkisstjórnin hefur farið tvisvar, þrisvar, ef ég man rétt, í nokkur verkefni við að draga úr regluverki en þá hefur það einkum beinst að reglugerðum til að mynda sem voru ekki lengur í notkun og höfðu enga þýðingu lengur. Ég held að einn fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hafi orðað það að fara út með ruslið sem lá fyrir manna fótum. En nú er mikilvægt að líta á það regluverk sem er í gildi og er virkt, gera það skiljanlegra og einfaldara.
Að því sögðu ítreka ég þakkir til hv. framsögumanns fyrir að halda utan um framvindu málsins.