skaðabótalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993.
Frumvarpið felur í sér þær breytingar að við skaðabótalög bætist ákvæði um gjafsókn í afmörkuðum málum.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er nánar frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Allir umsagnaraðilar fögnuðu málinu.
Með frumvarpinu er lagður til möguleikinn á lögbundinni gjafsókn í einkamálum er varða sókn miska- og skaðabóta vegna kynferðisbrota og ofbeldisbrota milli nákominna. Lögð er sérstök áhersla á þolendur kynferðisbrota og þolendur ofbeldisbrota í nánum samböndum þannig að þolendur umræddra brota geti, þrátt fyrir niðurfellingu mála á rannsóknar- og ákærustigi eða sýknu í sakamáli, fengið gjafsókn til að sækja bætur á hendur þeim sem verkið framdi í einkamáli.
Nefndin telur mikilvægt að liðkað sé fyrir veitingu gjafsóknar umfram skilyrði 126. gr. laga um meðferð einkamála undir vissum kringumstæðum með hliðsjón af eðli brota og alvarleika þeirra.
Við meðferð málsins var nefndinni bent á að ákvæðið í 1. gr. frumvarpsins gæti talist of víðtækt. Nefndin telur rétt að tillit sé tekið til mismunandi alvarleika kynferðisbrota og leggur því til að vísað sé til tiltekinna ákvæða almennra hegningarlaga, þ.e. ákvæða 194.–198., 200.–202. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, í stað þess að vísað sé til XXII. kafla laganna í heild sinni. Vísun til 218. gr. sömu laga varðandi ofbeldi í nánu sambandi er óbreytt.
Jafnframt leggur nefndin til skilyrði um að hugsanlegt brot hafi verið til rannsóknar hjá lögreglu. Með breytingunni er þannig verið að stemma stigu við því að ákvæðið leiði til þess að brotaþolar fari eingöngu í einkamál en leiti ekki til lögreglu sem rannsaki mál og eftir atvikum gefi út ákæru. Ríkir almannahagsmunir búa að baki því að kynferðisbrot og heimilisofbeldisbrot séu kærð og sæti rannsókn lögreglu. Þetta skilyrði er því til þess fallið að tryggja að þolendur verði ekki fráhverfur því að kæra slík brot til lögreglu.
Þá leggur nefndin til að stefnandi, sem á grundvelli ákvæðisins óskar eftir gjafsókn í einkamáli sem varðar miska- eða skaðabætur, sýni fram á í umsókn til gjafsóknarnefndar að líkur séu á að skaðabótaskylda sé fyrir hendi í málinu.
Þá vill nefndin sérstaklega árétta að skilyrðum a- og b-liða 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála þarf ekki að vera fullnægt svo til greina komi að veita gjafsókn. Það er svo hlutverk gjafsóknarnefndar að leggja mat á það hvort framangreind skilyrði um nægilegt tilefni séu uppfyllt og taka ákvörðun um veitingu gjafsóknar samkvæmt ákvæðinu.
Loks er lagt til að gildistöku sé frestað til 1. júní 2023.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Kári Gautason.
Ég vil nýta þetta tækifæri til að þakka nefndinni fyrir sín góðu störf og þakka alveg sérstaklega hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, fyrsta flutningsmanni, sem og öðrum flutningsmönnum frumvarpsins fyrir þeirra störf. Samstaðan um þetta mál skiptir í mínum huga alveg gríðarlega miklu máli. Hér er stigið mikilvægt skref sem getur skipt töluverðu máli fyrir þolendur kynferðisbrota og þolendur ofbeldisbrota í nánum samböndum.