rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018, um nikótínvörur.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur nr. 87/2018, þannig að nikótínvörum, líkt og nikótínpúðum, verði bætt inn í ákvæði laganna. Hingað til hafa engin lög náð utan um nikótínvörur hér á landi og verði frumvarp þetta að lögum hefur það í för með sér að slíkar vörur lúti að mestu leyti sömu reglum og gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær. Markmiðið með frumvarpinu er þannig að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum með því að fella þær undir sömu reglur og gilda samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi á þskj. 1318.
Nikótínpúðar eru tiltölulega nýleg vara og aðeins eru um rúm tvö ár síðan varan kom í einhverjum mæli á markað á Íslandi. Neysla vörunnar hefur aukist hratt hér á landi og rannsóknir sýna að nú neytir allt að þriðjungur framhaldskólanema á aldrinum 16–18 ára púðanna. Meiri hlutinn bendir á að umsagnaraðilar eru almennt sammála um mikilvægi þess að koma á reglum um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar nikótínvara, en þó komu fram nokkrar athugasemdir við efni frumvarpsins. Í umsögnum og umfjöllun þar kom þannig fram töluverður ágreiningur um efni þess, ýmist um að frumvarpið gengi of langt eða þá að ganga þyrfti lengra við að takmarka sýnileika og aðgengi að nikótínvörum. Meiri hlutinn lagði í umfjöllun sinni áherslu á að skoða hvernig mætti draga úr áhrifum vörunnar á börn og ungmenni.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 11. gr. laganna þar sem lagt er bann við hvers konar auglýsingum á nikótínvörum. Að mati meiri hluta nefndarinnar þjónar bann af þessum toga vart tilgangi sínum lengur þar sem slíkar auglýsingar berast Íslendingum í erlendum miðlum, hvort sem er í gegnum erlenda hljóð- og myndmiðla, erlenda vefi og samfélagsmiðla eða erlend blöð og tímarit. Að því sögðu beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að ráðist verði í heildarendurskoðun á reglum um auglýsingar er snerta nikótín-, tóbaks- og áfengisvörur hér á landi svo að heildarumgjörð og markmið laga sem um slík bönn gilda nái tilgangi sínum.
Þá að breytingunum sem nefndin leggur til á frumvarpinu en þær eru tvær. Í fyrsta lagi er lagt til að b-liður 9. gr. frumvarpsins sem mælir fyrir um bann við innflutningi, framleiðslu og sölu á nikótínvörum sem innihalda bragðefni, verði fellt á brott. Nefndinni bárust nokkrar umsagnir þar sem bann við notkun bragðefna í nikótínvörum er gagnrýnt. Þá er rétt að geta þess að rannsóknir á áhrifum bragðefna í nikótínvörum eru af skornum skammti og hafa enda verið stutt á markaði eins og áður er sagt. Í umsögnum og umfjöllun um málið í nefndinni hafa komið fram mjög skiptar skoðanir um þetta bann. Innan nefndarinnar voru jafnframt uppi ólík sjónarmið varðandi bragðbannið. Þrátt fyrir að notkun bragðefna kunni að hafa áhrif á neyslu barna og ungmenna á vörunum er það niðurstaða meiri hlutans að frekari vinnu þurfi til að greina áhrif slíkra aðgerða, þ.e. banns, og mögulegar leiðir við að afmarka bannið og framfylgja því.
Að mati meiri hlutans er ljóst að meiri tíma þarf til að útfæra slíkt bann og skjóta undir það traustari stoðum. Bannið sé með öðrum orðum ekki nægilega vel undirbyggt eins og það er sett fram í þessu frumvarpi. Meiri hlutinn hvetur til þess að heilbrigðisráðuneytið og eftirlitsaðilar haldi áfram að fylgjast með alþjóðlegum rannsóknum og stefnumótun varðandi áhrif bragðefna á neyslu nikótíns og leiðum til að draga úr henni. Meiri hlutinn leggur því til í ljósi þessara sjónarmiða að áðurnefndur b-liður 9. gr. frumvarpsins, um bann við innflutningi, framleiðslu og sölu á nikótínvörum sem innihaldi bragðefni, verði felldur á brott.
Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til breytingu á 12. gr. frumvarpsins varðandi bann við notkun nikótínvara á stöðum þar sem börn og ungmenni safnast saman. Í 12. gr. frumvarpsins er lagt til að ný málsgrein bætist við 12. gr. laganna þar sem bann er lagt við notkun nikótínvara í skólum, öðrum menntastofnunum og á öðrum stöðum þar sem börn og ungmenni safnast saman. Fyrir nefndinni kom fram gagnrýni á orðalag greinarinnar, það kynni að valda misskilningi og að bannið megi túlka þannig að það nái til allra menntastofnana óháð aldri fólks sem þar stundar nám. Einnig var bent á að skerpa mætti á gildissviði ákvæðisins gagnvart starfi fyrir börn.
Meiri hlutinn tekur undir þessa gagnrýni og er sammála því að orðalag þessarar greinar þurfi að skýra. Meiri hlutinn leggur því til að orðalagi 12. gr. verði breytt svo að allur vafi verði þar tekinn af um að notkun nikótínpúða sé óheimil alls staðar þar sem börn og ungmenni koma saman í dagvistun, sem og í skipulögðu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi, hvort sem það á sér stað innan dyra eða utan. Upptalningin í lagaákvæðinu er ekki tæmandi heldur afmörkuð með aldursviðmiðinu 18 ár.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Björgvin Jóhannesson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Óli Björn Kárason og Orri Páll Jóhannsson.
Virðulegi forseti. Eins og fram kom er hér í fyrsta skipti verið að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum með því að fella þær að mestu undir sömu reglur og gilda samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Ég tel þetta gríðarlega mikilvægt skref að til verði umgjörð um þessa vöru á markaði en eins og áður hefur komið fram er þetta vara sem aðeins hefur verið hér á markaði í tvö ár. Ég vil líka nefna það hér að ég álít að við eigum eftir að sjá ýmsar breytingar á lagaumgjörð um tóbak og staðgönguvörur þess á næstu mánuðum og árum í ljósi alþjóðlegrar þekkingar og stefnumótunar varðandi forvarnir og markaðsumgjörð þessara vara.