tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Frú forseti. Ég vil taka undir það sem formaður Miðflokksins sagði hér áðan, að hann vonaðist til þess að ríkisstjórnin tæki það sem hér er lagt fram, tillögu um einföldun regluverks, til alvarlegrar skoðunar. En þegar farið var yfir málið áðan þá hafði ég ekki séð nefndarálit með frávísunartillögu. Ég verð eiginlega að fá að grípa þetta tækifæri til að benda á það sem þar kemur fram, þar sem segir, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn“ — þ.e. meiri hluti nefndarinnar — „leggur því til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera úttekt á nauðsyn þess að regluverk verði einfaldað.“
Ef það er efi í mönnum um að ganga þurfi til þessarar vinnu þá er það ekki góð byrjun að nefndin, með öfluga Sjálfstæðismenn í formennsku og framsögumann nefndarálits, sé bara að velta fyrir sér hvort það sé yfir höfuð nauðsynlegt að regluverk verði einfaldað. Það er ekki mjög góð byrjun á vegferð þessarar þingsályktunartillögu en ég vona að úr rætist þegar ríkisstjórnin tekur málið til sín.