tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Það hlýtur að teljast fagnaðarefni, svona í ljósi síðustu missera og ára, að Sjálfstæðisflokkurinn sé a.m.k. til í að ráðast í skoðun á því hvort tilefni sé til að einfalda regluverk og minnka báknið. Miðað við framgang mála hér á þingi og afrek þessarar ríkisstjórnar þá á maður líklega að vera þakklátur fyrir það að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að velta því fyrir sér hvort tilefni sé til að ráðast í einföldun regluverks. Því finnst mér þetta a.m.k. vera jákvætt skref. Í ljósi þess að tillagan gerði hvort eð er ráð fyrir því að málinu yrði vísað til ríkisstjórnar, í þeim skilningi að henni yrði falið að finna út úr þessu, að afgreiða málið með ákveðnum leiðbeiningum, þá geri ég ráð fyrir að styðja tillögu um að málinu verði vísað til ríkisstjórnar. En við munum fylgjast með hvernig gengur.