atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Mér finnst mjög miður að þurfa að fella þessa tillögu því að hún er í grunninn mjög góð, enda var hún í frumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherra lagði hér fram. Við hefðum kannski betur klárað að afgreiða það mál. En ég veit að þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni þegar hún fer hér yfir það, þetta stenst bara ekki lagalega gerð. Ég hafði hugsað mér að reyna slíkt hið sama sjálf þegar við fjölluðum um málefni atvinnuréttindi útlendinga, þ.e. hvernig hægt væri að víkka út þetta ákvæði varðandi atvinnuréttindi útlendinga almennt. Ég hvet hv. þingmenn alla til að koma af mikilli ábyrgð inn í umræðu um útlendingamál um leið og við komum saman í haust og finnum raunverulegar lausnir til að ná saman í þeim mikilvæga málaflokki.