152. löggjafarþing — 92. fundur,  16. júní 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[01:05]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég er ekki á nefndaráliti meiri hlutans í þessu máli og við í þingflokki Pírata munum greiða atkvæði með breytingartillögum meiri hlutans sem eru til góða. Það er verið að hætta við að banna alls konar nammibragð og ávaxtabragð sem var mjög vafasöm aðgerð. Við styðjum það en verðum á gulu á frumvarpinu í heild og það snýr að því að það vantar að skoða heildarmyndina með skaðaminnkun að leiðarljósi. Það hefði þurft að kortleggja skaðsemi mismunandi nikótínvara og fella undir mismunandi hættustig því að regluverkið ætti að miða við hættustigið. Annars er hætta á að aðgengi að mismunandi nikótínvörum verði handahófskennt sem er ekki góð lending, en við sjáum það dálítið í þessari bútasaumsnálgun á málaflokkinn. Lögin sem ná utan um þessar vörur þyrftu að vera heildstæðari og innbyrðis samhengi í þeim til að tryggja að við séum ekki að hefta aðgengi að vörum sem eru minna skaðlegar á meðan meira aðgengi er að öðrum vörum sem eru skaðlegri. (Forseti hringir.) Þetta er bara röng nálgun. Við þurfum að taka þetta upp og skoða þetta heildstætt.