152. löggjafarþing — 92. fundur,  16. júní 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[01:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þetta frumvarp í heild sinni er fullt af fögrum fyrirheitum í þágu barna og ungmenna en leiðin að settu marki er frekar sérkennilega holótt fjallabaksleið. Það versta í þessu frumvarpi er tillagan um bragðbannið svokallaða og þessi breytingartillaga tekur þann óskapnað út. Ég vek þó athygli á rökstuðningi meiri hluta velferðarnefndar fyrir því að henda út ákvæðinu, með leyfi forseta:

„Þrátt fyrir að bann við notkun bragðefna kunni að skila árangri til að draga úr neyslu barna og ungmenna á níkótínvörum er það niðurstaða meiri hlutans að frekari vinnu þurfi við að greina áhrif slíkra aðgerða og mögulegar leiðir við að framfylgja slíku banni. Að mati meiri hlutans er því ljóst að meiri tíma þarf til að útfæra slíkt bann og skjóta undir það traustari stoðum. Bannið sé með öðrum orðum ekki nægilega vel undirbyggt eins og það er sett fram í þessu frumvarpi.“

Það verður því ekki betur séð en að meiri hluti velferðarnefndar bíði mjög spenntur eftir tækifæri fyrir því að setja þetta furðulega, sérkennilega bragðbann á síðar. Það gerist þá það sama og með útlendingafrumvarp hæstv. dómsmálaráðherra, það kemur aftur og aftur inn í þingið til þess eins að vera fleygt út aftur og aftur. Viðreisn verður jafn mótfallin því banni í fyllingu tímans og flokkurinn er í dag.