þingfrestun.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 152. löggjafarþings frá 15. júní 2022, eða síðar ef nauðsyn krefur, til 13. september 2022.
Gjört í Reykjavík, 15. júní 2022.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis fyrr í kvöld lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 152. löggjafarþings, er frestað.
Ég nota tækifærið og þakka hv. alþingismönnum fyrir gott samstarf á þessu þingi og þakka starfsfólki þingsins sérstaklega fyrir vel unnin störf. Ég óska öllum hér í húsi góðrar heimferðar og gleðilegs sumars.