153. löggjafarþing — 1. fundur,  13. sept. 2022.

afsal varaþingmennsku.

[15:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá 1. og 8. varaþingmanni Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, Þórunni Björgu Bjarnadóttur og Jennýju Ósk Vignisdóttur, dags. 1. sept. síðastliðinn, þar sem þær segja af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt til tvö sæti sem því nemur og 1. varaþingmaður flokksins í kjördæminu verður Hermann Jónsson Bragason vélstjóri.