fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar byggðar á aukinni flatri skattheimtu sem leggst þyngst á tekjulægstu heimilin í landinu, auknu aðhaldi í grunnþjónustu sem bitnar á notendum velferðarþjónustunnar og niðurskurði í fjárfestingu sem heldur aftur af innviðauppbyggingu í landinu. Þetta dregur úr umsvifum fyrirtækja og fólks sem vinnur hjá þessum fyrirtækjum, virkni sem verður ekki endurreist á einni viku þegar hæstv. fjármálaráðherra skrúfar aftur frá fjármagni fyrir fjárfestingu. Á undanförnum vikum og mánuðum hafa samstarfskonur hæstv. fjármálaráðherra í ríkisstjórn, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, talað fyrir annarri leið, annarri forgangsröðun, að sækja meira fjármagn í fjármagnstekjur, stórútgerð og hvalrekaskatta. Þessar áherslur er hvergi að finna í frumvarpinu heldur einkennist frumvarpið af þeirri pólitík sem hæstv. fjármálaráðherra hefur talað fyrir undanfarinn áratug.
Spurning mín til hæstv. fjármálaráðherra er því einföld: Hefur hæstv. ráðherra sannfært samstarfsráðherra sína um ágæti sinnar leiðar?