153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[09:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins fyrst um krónutöluskattana og gjöldin. Ákvörðun um að láta krónutöluskatta og gjöld ekki fylgja verðlagsþróun í landinu er ákvörðun um skattalækkun. Þannig horfi ég á það. Ákvörðun um að halda slíkum sköttum og gjöldum ýmist óbreyttum eða láta breytinguna ganga í takt við verðbólgumarkmið upp á 2,5%, sem er það sem við höfum verið að gera undanfarin ár, er eiginleg skattalækkun. Við þær aðstæður sem mynduðust á fyrri hluta ársins, þar sem Seðlabankinn bregst við verðbólgutölum með því að hækka vextina í jöfnum skrefum og alveg fram á haustið, þá var mikið tilefni fyrir ríkisstjórnina til að spyrja sig hvort fjármálaáætlunin, sérstaklega fyrir árið 2023, kallaðist nægilega vel á við það ástand sem við okkur blasti. Við fórum í aðgerðir til að bæta afkomuna um tæplega 30 milljarða. Ég held að það hafi skipt máli. Ég rakti það í framsögu minni. Meðal þess sem við erum að gera er að verðtryggja þessa skatta, þ.e. að láta þá fylgja verðlaginu. Hv. þingmaður velti því fyrir sér hvort þetta væri slæmt fordæmi. Ég veit það ekki. Ég ætla ekki að taka ábyrgð á því hvað sveitarstjórnirnar gera, þær verða að standa ábyrgar fyrir sínu hver fyrir sig. Ég tók eftir því í tengslum við hækkanir á fasteignaverði að sumar sveitarstjórnir ætluðu að breyta í takt við verðlagsbreytingar meðan aðrar ætluðu ekki að grípa til neinna aðgerða. Þetta verður bara misjafnt í einstaka sveitarfélögum.

Aðeins varðandi viðskiptajöfnuðinn: Við höfum verið með mikinn vöruskiptahalla en þjónustujöfnuðurinn hefur verið að vinna hann upp að langmestu leyti sem hefur skilað ágætum viðskiptajöfnuði. Þess vegna hefur krónan verið að styrkjast (Forseti hringir.) gagnvart erlendum gjaldmiðlum frekar en hitt.