Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[10:03]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ný fjárlög frá sömu ríkisstjórninni, ríkisstjórn sem hefur setið hér í að verða áratug. Í það minnsta er ljóst að það eru nær engar áherslubreytingar sem hefur mátt finna ár eftir ár frá því að stjórnarmynstrið breyttist lítillega árið 2017. Við erum með einn flokk sem stýrir landinu, tvo sem láta eins og þeir séu í stjórnarandstöðu miðað við málflutninginn í stóru málaflokkunum. Ráðherrar talaði um fjármagnstekjuskatt, álag á stórútgerð og hvalrekaskatt, en í lok dags er það hæstv. fjármálaráðherra sem ræður.

Á þessum fjárlögum ber hins vegar öll ríkisstjórnin ábyrgð. Hæstv. ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ber ábyrgð á því að nú þegar við siglum í gegnum verðbólguskot, methækkanir á húsnæðismarkaði og sögulega hraðan viðsnúning í hagstjórn, sem birtist í miklum vaxtahækkunum á örfáum mánuðum, er almenningur látinn taka skellinn. Berjast á við verðbólguna með því að hækka flata skatta í landinu. Krónutöluhækkanir skila nú 3 milljörðum kr. til viðbótar. Slík gjöld eru flötustu skattar sem til eru. Af því leiðir að tekjuhátt fólk sem á miklar eignir finnur minnst fyrir þeim og þau sem hafa lítið á milli handanna hlutfallslega mest. Datt engum í þessari ríkisstjórn í hug að svigrúm væri til staðar í öðrum tekjustofnum, meðal fólks og fyrirtækja sem hafa beinlínis hagnast á ástandi efnahagsmála í kringum Covid og í kjölfar stríðsins í Úkraínu á meðan talsverður fjöldi heimila stendur nú í ströngu vegna sömu aðstæðna?

Hæstv. ríkisstjórn virðist skorta jarðtengingu við íslenskt samfélag. Kannski þarf því að minna á hver staðan er. Í könnun sem framkvæmd var síðsumars kom fram að 77% heimila með tekjur undir 400.000 kr. eiga engan afgang um hver mánaðamót og 43% heimila með tekjur á bilinu 400.000–800.000 kr. Ungt fólk, barnafjölskyldur, er margt hvert að lenda í þreföldu höggi, afborganir af húsnæði rjúka upp, það hleðst á greiðslubyrði af höfuðstól námslána og nauðsynjavörur hækka í verði. Á þetta er ekkert minnst í því plaggi sem hér er til umfjöllunar. Til þessara hópa er ekkert að sækja, virðulegi forseti. Við komum út úr heimsfaraldri með gríðarlega miklar eignaverðshækkanir, aukinn eigna- og tekjuójöfnuð vegna aðgerða stjórnvalda. Fjármagnstekjur jukust um 52% í fyrra, sem er mesta aukning frá árinu 2007. Fyrir vikið hækkuðu ráðstöfunartekjur mun meira hjá tekjuhæstu 10% landsmanna í fyrra en hjá öðrum tekjutíundum.

Þá hefur verðmæti sjávarafurða hækkað vegna stríðsins í Úkraínu, verð á ferskum fiski rokið upp. Þarna má sjá mótvægi við neikvæðu hliðar stríðsins og erlendrar verðbólgu og hagkerfið, en það mótvægi dreifist ekki jafnt um hagkerfið óáreitt.

Á tímum sem þessum á að hvetja til samstöðu. Hvernig væri staðan hér á landi ef forystan í stjórnmálunum endurspeglaðist líka samstöðu, ekki innan ríkisstjórnarflokkanna um að halda í embættin heldur samstöðu þjóðar? Hvernig væri ef forystan leiddi aðgerðir sem hvetja til þess að hvalrekar vegna stríðs og verðbólgu renni með sanngjörnum hætti um samfélagið? Það eru skýr og djúp skilaboð sem hæstv. ríkisstjórn sendir út þessa dagana. Hér er verið að kljúfa samfélagið í stað þess að þjappa því saman. Við sjáum tvöföldun í aðhaldi á rekstri stofnana ríkisins í þessu frumvarpi, 5 milljarða niðurskurður í grunnþjónustu og enn og aftur beitir ríkisstjórnin fjárfestingum sem afgangslið í ríkisrekstri. Þau virðast ekkert hafa lært. Þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð frá alþjóðastofnunum og fjármálaráði um að beita ekki fjárfestingu í innviðum sem afgangsstærð, það var lærdómur síðustu kreppu sem við erum enn að vinna okkur út úr, nýtir ríkisstjórnin fyrsta tækifærið til að skera niður í fjárfestingu um 10 milljarða kr.

En það eru ekki aðeins málflutningur ríkisstjórnarinnar sem skortir innbyrðis samfellu, hæstv. fjármálaráðherra hefur borið fyrir sig að illa gangi að koma fjárheimildum vegna fjárfestinga út á undanförnum árum og þess vegna hafi innviðaátakið svokallaða skilað minni árangri en vonast var til. Augljós ástæða þar að baki er að þú getur ekki ræst vélarnar á nokkrum dögum, kallað út mannskapinn til að reisa innviðina á einum degi. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fyrirtæki í innviðauppbyggingu og fólk sem hjá þeim starfar bíði bara, setji áform sín á ís og fari ekkert annað í millitíðinni á meðan hæstv. fjármálaráðherra hreyfir til milljarðana innan dýrmæts afkomuramma Sjálfstæðisflokksins.

Það tekur mörg ár að byggja upp þekkingu í uppbyggingu innviða, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. Við stöndum á tímamótum í uppbyggingu húsnæðis og fjárfrekra en samfélagslega arðbærra innviða. Hundruð manna komust ekki að í Tækniskólanum í iðnnám og hæstv. fjármálaráðherra ber fyrir sig skynsamlega hagstjórn þegar ákveðið er að skera niður í opinberri fjárfestingu. Þetta lýsir annaðhvort djúpu þekkingarleysi á hvað þarf til til að standa undir innviðum samfélagsins eða dogmatískri nálgun á hvert hlutverk ríkissjóðs sé og markmið þeirra sem hér stjórna. Umfram allt snýst þetta um að minnka ríkisumsvif í stað þess að standa undir uppbyggingu sem styrkir samfélagið til langs tíma.

Við þetta bætist að samgönguáætlun er ekki verðbætt, sem þýðir á mannamáli að þær upphæðir sem hafa verið samþykktar í samgönguáætlun breytast ekki vegna launa, verðbólgu eða almennrar kostnaðarþróunar. Allir hafa þessir liðir rokið upp á undanförnum mánuðum en í fjárlögunum er ekkert brugðist við þessu. Þetta þýðir einfaldlega að skera þarf niður í samgönguáætlun.

Við erum að reyna að reka hér samfélag, virðulegi forseti, en hæstv. fjármálaráðherra er á annarri vegferð. Undir þá vegferð kvitta fylgiflokkarnir í ríkisstjórninni, þeir hinir sömu og senda ítrekað út misvísandi skilaboð til íslensks almennings um að hér sé verið að verja velferðina. Þetta er hættulegur málflutningur. Skilaboð um að verið sé að vinna í hlutunum, talnaleikfimi um auknar fjárveitingar, óleiðréttar fyrir aukinni þjónustuþyngd, launakostnaði, fólksfjölgun. Þegar ekkert breytist veltir almenningur í auknum mæli fyrir sér hvort við getum yfir höfuð staðið í þessu saman. Er raunverulega hægt að reka hér opinbert heilbrigðiskerfi, öldrunarþjónustu, menntakerfið og tryggja grunnþarfir fólks í tengslum við húsaskjól? Í hvað fara eiginlega skattarnir mínir? Nær væri að segja upp fólki hreint út hver stefnan er; að velferðarmálin hér eru í stýringu í hæstv. fjármálaráðuneyti, að landinu er stýrt af stjórnmálastefnu með fimmtungs fylgi, að skýrar pólitískar línur hafa áhrif á forgangsröðun og þær línur hafa lítið með velferð að gera. Þessi blekkingarleikur er stórhættulegur því að hann elur á vantrú fólks um að við getum tekist á við samfélagslegar áskoranir í sameiningu. Þetta viðhorf, þessi sundrung, verður arfleifð þessarar ríkisstjórnar.

Heilbrigðisþjónustan er vanfjármögnuð enn eitt árið í röð. Lítið mark er tekið á forsvarsmönnum stærstu sjúkrastofnana landsins, sem í vor sögðu áætlaðar fjárhæðir til málaflokksins ekki svara undirliggjandi raunkostnaði. Þau eru ekki einu sinni að tala um fjármagn til að horfa til framtíðar eða prófa eitthvað nýtt, bara fjármagn til að halda í horfinu. Enn hefur engu verið bætt við fjármagn til Sjúkratrygginga Íslands til að semja við sérfræðilækna í landinu þrátt fyrir að við umfjöllun fjárlaganefndar um fjármálaáætlun í vor hafi komið fram að þáverandi upphæðir fyrir 2023 gæfu ekki svigrúm til slíkra samninga. Nú er svo komið að almenningur þarf að greiða allan útlagðan kostnað beint til sérfræðilækna og sækja svo um endurgreiðslu. Vitað er að nokkrir milljarðar hafa nú þegar farið úr vasa almennings, oftar en ekki fólks í viðkvæmustu stöðunni, vegna kostnaðarhækkana hjá sérfræðilæknum sem ríkið hefur ekki bætt upp. Uppsagnir á bráðamóttöku hreyfa ekki við stjórnendum landsins.

Húsnæðissáttmáli innviðaráðherra, sem kynntur var með pompi og prakt í vor, er nú þegar nýttur í fleiri blaðamannafundi, síðast í byrjun vikunnar, en hann stendur enn þá ófjármagnaður. Hæstv. ráðherrar benda hver á annan. Hæstv. innviðaráðherra sagðist hafa skilað tillögum um auknar fjárveitingar inn í tillögur fyrir fjármálaáætlun í vor. Hann fékk nei. Hæstv. fjármálaráðherra segist nú ekkert hafa fengið frá umræddum innviðaráðherra. Rót verðbólgunnar, óstöðugleika í uppbyggingu húsnæðis, er mætt með niðurskurði í framlögum til uppbyggingar húsnæðis. Tökin eru hert í fjármálaráðuneytinu á hinum ráðherrunum með því að stækka almennan varasjóð sem hæstv. fjármálaráðherra ætlar svo að ausa úr eftir eigin hentugleika í aðdraganda 2. umr.

Það er rík ástæða til að óska hæstv. fjármálaráðherra til hamingju með þetta frumvarp. Hann stendur sína vakt fyrir sitt fólk. Spurningin er hvað hinir flokkarnir eru eiginlega að gera í þessari ríkisstjórn annað en að ala á vantrú fólks á velferðarríkinu.