153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:54]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að segja það varðandi markaðsgjald og framboð og eftirspurn að ég hef alltaf haft áhyggjur af því að þá ráði þeir stóru för, talandi um samþjöppun í útgerð, og tel erfitt að koma í veg fyrir slíkt. Varðandi rafmagnsbílana og mótvægisaðgerðir þá höfum við ekki rætt neitt sérstaklega hvað getur tekið við eða hvernig. Ég bara velti því upp að þegar ívilnanirnar virðast ekki vera að skila sér í því að við erum að fjölga þeim enn frekar eins og á þessu ári, þá er spurning hvort það er eitthvað annað sem við getum gert. Við þurfum að huga að jöfnum umskiptum, þ.e. að við komum til móts við þá sem eru í neðri tekjutíundum og eiga erfiðara með að kaupa sér rafmagnsbíla. Mér finnst að við eigum líka að huga að því. En fyrst og síðast, og ég hef sagt það opinberlega, þurfum við að huga að heildstæðu mati þegar við erum í þeirri vinnu sem varðar gjöld á ökutæki. Munið þið í sumar þegar allt fór á hliðina (Forseti hringir.) vegna umræðu um gjöld í göng? Mér finnst vanta dálítið að við náum betur utan um þetta og tökum þetta ekki endilega bara í einhverjum bútum.