153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:56]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég ætla ekki að segja að ég viti nákvæmlega miðað við hvað. En hins vegar skal ég spyrja um það, það er lítið mál. Við getum gert það þegar ráðherra málaflokksins kemur til okkar, þ.e. umhverfis- og loftslagsráðherra. En ég vil bara minna á það hér að þegar horft er á framlög til umhverfismála er það gjarnan gert í gegnum þetta eina ráðuneyti. Það er mjög mikilvægt að hafa í huga að það er verið að huga að loftslagsmálum í gegnum öll ráðuneyti. Matvælaráðuneytið hefur sett af stað mjög öfluga vinnu í samvinnu við bændur og aðra aðila, hagaðila, sjávarútveginn o.fl. Það er kannski það sem mér hefur fundist skorta á í umræðunni þegar verið er að tala um aðgerðir til loftslagsmála. Við þekkjum þetta með bílana, það er í umræðunni. En það vantar dálítið að ná utan um þessa heild þegar verið er að tala um framlög til loftslagsmála. Þau eru þvert á alla málaflokka og eiga líka að vera það. Öðruvísi náum við ekki árangri. En eins og ég segi varðandi þessa prósentu, við bara fáum að vita það þegar fulltrúar frá ráðuneyti umhverfismála koma til okkar .