fjárlög 2023.
Frú forseti. Hv. þingmaður spyr hér mjög áhugaverðra spurninga. Áður en ég kem að því að svara þeim vil ég nota tækifærið til að taka undir með hv. þingmanni. Ég nefni hér dæmi, sem við höfum reyndar oft talað um áður en er svo skýrt og setur hlutina í svo gott samhengi að það þarf að halda áfram að hamra á því, sem er tapið og hinn aukni kostnaður sem leiðir af pólitískum kreddum í heilbrigðismálum og birtist ekki hvað síst í því að verið er að senda sjúklinga til útlanda til meðferðar þar á einkareknum stofnunum fyrir miklu meiri peninga. Bara ef það gerist ekki hér heima þá er það í lagi — eins og þetta sé á einhvern hátt óhrein starfsemi sem megi borga meira fyrir að láta fara fram í útlöndum frekar en hér heima. Þetta er svipað og að við ætlumst til þess að allir aðrir framleiði gas en við viljum ekki gera það sjálf, eitthvað sem litið er á sem óhreina starfsemi sem verði að vera annars staðar og aðrir eigi að taka það að sér.
En varðandi komandi kjarasamninga og hugsanlega aðkomu ríkisstjórnarinnar að því þá gefur það ekki til kynna að ríkisstjórnin verði samstiga í því hvernig hún nálgast kjarasamningana, hvernig talað er um til að mynda grundvallaratvinnuvegi landsins, eins og ég nefndi hérna áðan. Að mínu mati væri skynsamlegast fyrir stjórnvöld að taka þátt í samráðinu án þess að spila út sínu að öllu leyti strax, einfaldlega af taktískum ástæðum, það er nauðsynlegt að stjórnvöld gefi ekki allt sitt eftir og það sem kemur í framhaldi af því raski öllum áætlunum ríkisins. En á réttum tímapunkti væri best að stjórnvöld hyggju á hnútinn með skattalækkunum og gjaldalækkunum, hvort sem það væri tímabundið eða til lengri tíma. En þetta fjárlagafrumvarp gefur ekki til kynna að ríkisstjórnin sé tilbúin til þess.